votnogveidi_Fors_2009-03
Fréttir

Þingvallabæklingurinn góði

24.2.2011

 

 

ÞingvallabæklingurinnÞó að augu flestra beinist að sjóbirtingsánum 1.apríl, þá opna mörg silungsvötn og ár bæði þann dag og síðan 1.mai. Þingvallavatn er eitt af mai-vötnunum og þangað leita margir.

 Svona lítur hann út.

Mai er kannski ekki besti mánuðurinn á Þingvöllum og helst að heppnir veiðimenn setji þá í urriðana stóru. Bleikjan kemur smátt og smátt til skjalanna en erfitt að segja til um nákvæmlega hvenær hennar tími hefst og segja kunnugir að það byrji helst þegar birkið byrjar að springa út. Það er til marks um varanlega hlýnun vorsins þegar á heildina er litið þar sem íslenska birkið er ein þeirra tegunda sem láta ekki hlýindaskot seint á vetri plata sig. Í góðum vorum byrjar bleikjan oft að gefa sig seint í mai, en annars er júní að öllu jöfnu besti tíminn hennar.

 Thingvellir-010507-02

Við Þingvallavatn í byrjun mai. Kjarrskógurinn eiginlega svartur í baksýn. Mynd Heimir Óskarsson.

Víða er veitt við Þingvallavatn, en sjálfsagt er Þjóðgarðurinn með mestu vinsældirnar, ekki hvað síst eftir að það svæði varð hluti af veiðisvæðalista Veiðikortsins. Þykir sumum jafnvel nóg um þann fjölda veiðimanna sem stunda vatnið, en það verður þó að segjast eins og er, að ef Þingvallavatn þolir ekki marga veiðimenn þá þolir það ekkert vatn. Þeim fjölgar sem vilja bleyta færi á vorin og liðka sig til fyrir sumarveiðina. Fyrir aðra er vorveiðin hrein ástríða. En hvað sem því líður þá er Þingvallavatn í miklu uppáhaldi. Fiskur er vænn. Það er mikil dulúð og það er mikil saga og náttúrufegurð. Fyrir þá sem vilja kynnast vatninu betur þá hefur verið unnið stórvirki fyrir þá hina sömu. Það voru SVFR og Nielsen veiðivörur sem unnu litprentaðan og ríkulega myndskreyttan kynningarbækling um Þjóðgarðssvæðið fyrir nokkrum arum. Ýmsir eiga þennan bækling, en hann má finna í PDF formi á vef SVFR og minnsta mál að prenta hann út. Hann má líka finna núna með fyrstu frétt á vef Veiðikortsins, www,veidikortid.is Sjá nánar hér:

Smelltu hér til að sækja bæklinginn af vefsetri SVFR.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica