Þó að augu flestra beinist að sjóbirtingsánum 1.apríl, þá opna mörg silungsvötn og ár bæði þann dag og síðan 1.mai. Þingvallavatn er eitt af mai-vötnunum og þangað leita margir.
Veiðikortið lætur ekki deigan síga, það nýjasta kemur út innan skamms og á því verður að finna nokkur ný veiðisvæði.
Það er gaman að segja frá því að við heyrðum af fínu sjóbleikjskoti í Hraunsfirði fyrir skemmstu. Hraunsfjörður er eitt af svæðum Veiðikortsins.....
Veiði lýkur í Þingvallavatni þann 15.9. Enn er von um stórurriða í vatninu eins og eftirfarandi veiðisaga gefur til kynna.
Þótt kominn sé september þá skyldi enginn halda það að vatnaveiði sé sjálfhætt. Í raun fer í hönd einn skemmtilegasti tíminn. Sérstaklega á það við um þau vötn sem hafa að geyma urriða og sjóbleikju.