votnogveidi_Fors_2009-03

um vefinn

Um vefinn ...

Hér getur að líta margþætt vefrit um þetta geysivinsæla eðalsport. Við leggjum megináherslu á að hafa efni sem fjölbreyttast þannig að allir áhugamenn um stangaveiði finni eitthvað sem þeim hentar og líkar og með engu tilliti til aldurs eða kyns, enda er hér á ferð sport sem höfðar til allra. Hér verður og ekki farið yfir í að draga veiðimenn í dilka eftir því hvar og hvernig þeir veiða innan ramma reglna, en hins vegar munu ugglaust sjást sjálfstæðar skoðanir af og til sem aðhyllast eitt og annað, mestmegnis þá undir efnisflokkinum

Athygli er vakin á því að allt efni í Vötn og veiði er lesendum að kostnaðarlausu. Hér eftir verður hröð uppfærsla á nýju efni og lesendur því hvattir til að kíkja oft í heimsókn og fylgjast með.

Nýlega hefur síðan bæst við ný útgáfa hjá okkur, Veiðislóð. Veiðislóð er frítt tímarit á netinu sem fjallar um allrar handa sportveiði og tengt efni. Tvö tölublöð eru komin út þegar þetta er ritað í byrjun júlí 2011. Næstu mánuði verður blaðið gefið út mánaðarlega, en reynsla okkar af útgáfunni mun ráða framhaldinu. Þetta er alla vega skemmtileg tilraun og í takt við nútímann og þróun mála í útgáfu tímarita. Innan fárra ára verða þau meira og minna á netinu. Gott að vera snemma í því!.

En ástæða er til að ítreka hina hröðu uppfærslu á VoV, sem þýðir m.a. að mikill kraftur verður hér á veiðifréttum auk almenns efnis og hvetjum við lesendur til að senda okkur fréttir og myndir af skemmtilegum uppákomum, stórum fiskum, eftirminnilegum fiskum og góðri veiði. Tilkoma Veiðislóðar mun skerpa enn frekar fréttaþýðingu VoV.

Við munum leita til veiðimanna, veiðiréttarhafa, verslana, þjónustfyrirtækja og allra aðila sem tengjast veiði á einn eða annan hátt og segja ítarlegar fréttir allt árið um kring. Ef þið, lesendur viljið senda okkur línu og/eða myndir, þá sendið á netfangið ritstjorn@votnogveidi.is og við munum vinna úr því á vefritið okkar.

Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa hjá okkur er bent á að senda okkur línu á augl@votnogveidi.is eða að hafa samband í síma 588 0808. Þá er farsími ritstjóra 8621458.

Útgáfan er til húsa í Þingholtsstræti 35, 101 Reykjavík.

Bestu veiðikveðjur,

Guðmundur Guðjónsson ritstjóri

Heimir Óskarsson, auglýsingar/hönnun

Jón Eyfjörð Friðriksson tæknimál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica