Veiðiskýrslan fyrir sumarið 2010 er viðameiri en oftast áður. Laxarnir urðu fleiri en mörg undanfarin ár og svo höfum við ekki veitt svona marga stóra laxa í áratugi.
Fljótaá er bráðfalleg lax- og sjóbleikjuveiðiá sem fellur um Fljótin í utanverðum Skagafirði. Hún leynir á sér, er stríð, vatnsmeiri en menn gætu haldið, og býður upp á fjölbreytt og falleg veiðisvæði þar sem fluguveiði fer einstaklega vel.