AÐ KYNNAST ÞINGVALLAVATNI
Þingvallavatn hefur verið að koma til síðustu daga og menn eru að slíta upp fallegar bleikjur eins og öðrum vorum. Besti tímin fer nú í hönd. Aðdáendum vatnsins hefur fjölgað mjög síðustu ár, enda er vatnið að mörgu leyti einstakt. Það er hins vegar kúnstugt og það tekur tíma að læra á það. Annað kvöld geta menn skippað nokkrum árum á þeirri lærdómsbraut.

SVFR er með svokallað Hnýttu-bíttu kvöld í félagsheimilinu að Háaleitisbraut annað kvöld. H-b kvöldin eru nokkurs konar barnavæn opin hús, þ.e.a.s. það eru erindi, hnýtingar, en það sterkasta á boðstólum er ávaxtasafi og kaffi.
Silungar og Nielsenstöng.HÓ
Í kvöld er Þór Nielsen, annálaður sérfræðingur um Þingvallavatn á staðnum og ætlar að leiða gesti inn í undraveröld vatnsins og kynna flugur sem þar reynast best. Auk þess verður viðstöddum gefinn bæklingur með veiðistaðalýsingum og fleiru. Ofan á annað þá verður kynning á Nielsen-stöngunum, veiðistangalínu sem nú er framleidd og seld við góðar undirtektir, en stangirnar heita einmitt í höfuðið á Þór Nielsen.
