Veiðihornið: Senda Simms vörur utan
Ólafur og María í Veiðihorninu hafa bryddað upp á nýrri þjónustu við stangaveiðimenn sem stunda útgerð sína með Simms vöðlum og fatnaði. „Það er tilvalið nú þegar veiðimenn eru að pakka niður veiðigír sumarsins að athuga hvort ekki sé þörf á að gera klárt fyrir næstu vertíð. Og nú er tíminn,“ sagði Ólafur í samtali við VoV.
Og þessi er fréttin: Í samvinnu við Simms Europe býður Veiðihornið Síðumúla 8 nú viðskiptavinum sínum að láta yfirfara Simms vöðlur og jakka á verkstæði Simms í Noregi. Verkstæði Simms er viðurkennt Gore-tex verkstæði, vel búið tækjum. Starfsmenn hafa fengið þjálfun hjá Simms og Gore. Á verkstæðinu er gert við "pinholes" eftir t.d. flugur, rifur, og leka á samsetningum svo eitthvað sé nefnt. Þá er boðið upp á að skipta um sokka á vöðlum, rennilása og svo framvegis.
Og Ólafur bætir við: „Hugmyndin er að safna saman nokkrum vöðlum og senda út saman til viðgerða til þess að halda niðri flutningskostnaði. Áætlað er að fyrsta sending fari út nú í nóvember. Veiðimenn eru beðnir um að merkja vöðlur og fatnað vel áður en komið er með til okkar. Rétt er að taka fram að við tökum ekki á móti óhreinum fatnaði. En þetta er eitthvað sem veiðimenn ættu að huga að, því þeir geta lengt líftímann á Simms vöðlunum sínum með því að láta fara yfir þær á viðurkenndu Gore-tex verkstæði Simms.“
