Stangaveiðiárbókin Vötn og Veiði
Stangaveiði á Íslandi 2007 er komin út
Nýlega kom út stangaveiðiárbókin Vötn og Veiði – Stangaveiði á Íslandi 2007. Útgefandi er Litróf Hagprent, en ritstjóri bókarinnar er sem fyrr Guðmundur Guðjónsson, ritstjóri þessa vefjar. Þetta er í tuttugasta skipti sem árbók um stangaveiði kemur út hér á landi. Hún hefur heitið ýmsum nöfnum og tekið ýmiss konar útlits- og efnisbreytingum í gegnum tíðina. Þetta er þriðja árið sem útlitið og efnið er með þessum hætti.
Efni bókarinnar er orðið vel þekkt. Hlaupið er á helstu fréttum úr heimi stangaveiðinnar á Íslandi á árinu 2007. Nokkrar skemmtilegar veiðisögur skráðar og fjöldi ljósmynda birtar, bæði af veiðimönnum og veiðistöðum. Þá eru í bókinni nokkrir kaflar þar sem ritstjóri greinir frá persónulegri reynslu sinni af nokkrum nýjum veiðisvæðum. Þessi efnisflokkur byrjaði í bókinni 2005 og hefur mælst mjög vel fyrir. Að þessu sinni má nefna umfjallanir í máli og myndum af gömlum netaveiðisvæðum í Hvítá og Ölfusá, Þverá í Fljótshlíð, Minnivallalæk, Fögruhlíðará, Vatnsá í Heiðardal, auk þess sem ritstjórinn upplifir dejavu við Víkurá í Hrútafirði upp á dag ári eftir að hann lenti þar í eftirminnilegri veiði 2006.
Lesendur munu geta tryggt sér eintak af bókinni um Laxá í Kjós og Bugðu á sanngjörnu verði hér á vefnum hjá okkur með því að smella á bannerinn hér að neðan.

