24.8.2010
Veiðin í Laxá í Þingeyjarsýslu hefur verið betri það sem af er þessu sumri heldur en í fyrra. Þá eru veiðimenn sammála um að urriðinn sé betur haldinn og meira hefur sést af smáfiski en síðastliðið sumar.
Eftir mjög góða byrjun dró úr veiðinni. Þannig hefur það reyndar verið, best veiðist fyrstu 1 - 2 vikurnar en síðan dregur úr. Nú undir lok ágúst hafa veiðst ríflega 900 urriðar í Laxárdalnum en milli 2.600 og 2.700 í Mývatnssveitinni, skv. upplýsingum úr veiðihúsunum á Rauðhólum í Laxárdal og Hofi í Mývatnssveit.