22.7.2010
Jöklusvæðið, sem samanstendur af Jökulsá á Dal/Brú og þverám hennar, Laxá, Fossá og Kaldá og Fögruhlíðará að auki, hafði gefið 30 laxa þann 20. júlí s.l. Mest hafði veiðst í Laxá eða 19 laxar og 9 voru komnir úr Jöklu sjálfri, þar af 8 við svokallaðan Steinboga. VoV var á ferðinni á Jöklusvæðinu nú um síðustu helgi og tók þessar myndir þá.