votnogveidi_Fors_2009-04

Vef TV

VOVTV-C

Upphaf vertíðar 2011 - 1. apríl - 6.4.2011

Þetta er myndskeið frá Tungulæk og Varmá 1. apríl 2011. Ritstjórnin fór á þessum fyrsta degi í stangveiði sina hefðbundnu ferð til að fylgjast með aflabrögðum.

 
VOVTV-C

Mikill uppgangur í Selá í Vopnafirði - 21.9.2010

Selá í Vopnafirði hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár og áratugi. Þar hefur hófsemi við veiðar verið höfð í hávegum, laxi sleppt og veitt á tiltölulega fáar stangir ef miðað er við lengd árinnar.

 
VOVTV-C

Mjög góð veiði í Sogi - 14.9.2010

Mjög góð veiði hefur verið í Soginu það sem af er þessu laxveiðisumri. Áin er komin í um 1.100 laxa og nú sígur á seinnihluta tímabilsins.

 
VOVTV-C

Laxá í Þingeyjarsýslu - 24.8.2010

Veiðin í Laxá í Þingeyjarsýslu hefur verið betri það sem af er þessu sumri heldur en í fyrra. Þá eru veiðimenn sammála um að urriðinn sé betur haldinn og meira hefur sést af smáfiski en síðastliðið sumar.

 
TV-060810

Vatnsleysi í ám á vestanverðu landinu - 6.8.2010

Lítið hefur rignt nú í júlí á sunnan- og vestanverðu landinu. Það hefur hamlað laxagöngum og borist hafa fregnir af laxadauða m.a. í Norðurá. Þennan dauða vilja menn m.a. kenna háum vatnshita, bágum vatnsbúskap og þar með súrefnisleysi í ánum. Þá hefur einnig verið nefnt að veiða/sleppa fyrirkomulagið gæti haft áhrif þar á.

 



Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica