votnogveidi_Fors_2009-04
eru þau að fáann

Á dorgi fyrir norðan

9.2.2012

 

 

2012 ísdorg á KringluvatniÁ samskiptavefjum veiðimanna og einnig manna í millum er æ oftar rætt um dorgveiði, en rétt eins og þegar talað er um strandveiði, þá liggur fyrir að tækifærin hér á landi eru mörg og í fremsta gæðaflokki....og nú fer besti tíminn í hönd.

Þetta var sá stærsti á mótinu. Mynd MÞH.

Fyrir skemmstu stóð veiðibúðin Veiðivörur á Akureyri fyrir dorgveiðimóti á Kringluvatni í Reykjahverfi og var mæting góð, alls um 30 manns voru samankomin á ísnum í furðu góðu veðri, eða 3-5 stiga hita. Kringluvatn er eitt fjölmargra vatna sem henta vel til þessara veiða, en meðal fiska þar eru stórir urriðar. Vel veiddist, enda kunna reynsluboltar réttu handtökin þar. Að sögn er áhugi mjög vaxandi á dorgi, ekki síst fyrir norðan, en einnig fyrir sunnan. Þannig var fyrir skemmstu vel sótt kynningarkvöld í dorgveiði á Akureyri.

Meira er sagt frá dorgmótinu á Kringluvatni á vef Veiðikortsins, en Kringluvatn er eitt af fjölmörgum vötnum þess.  Lesendur geta skoðað meiri upplýsingar og fleiri myndir hér:  Ísdorgveiði fyrir norðan - nóg að gerast!




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica