votnogveidi_Fors_2009-02
eru þau að fáann

Veiddu hvern stórlaxinn af öðrum!

17.1.2012

 

20 pundari úr Esytrasalti.Laxveiði í sjó er klárlega bönnuð við Íslandsstrendur, en ytra eru menn sums staðar að veiða vel og veiða stórt. T.d. í Eystrasalti, en frá slíkum laxveiðum höfum við sagt frá áður hér á VoV.

Sá fyrsti kominn "á land".

Þetta eru athyglisverðar veiðar. Sterkar stangir, stórir spúnar, enda stórir laxar. Veiðivefurinn www.sportsfiskeren.dk greindi í dag frá gæfulegum veiðitúr nokkurra danskra vina sem voru að prufukeyra nýjan spún, eitthvað sem þeir kalla Rhino Lax Spoon, og eitthvað við þá nafngift segir okkur að um stóran spún sé að ræða, ætlaðan stórum löxum. Enda lentu kapparnir í ævintýri og voru búnir að snara inn fyrir borðstokkinn 20 punda laxi á örfáum mínum. Þetta var á ótilgreindum stað í vestanverðu Eystrasalti. En þessu var engan vegin lokið, hvert tröllið af öðru sveif á Nashyrningsspóninn og innan skamms var búið að innbyrða alls sex laxa, alla á bilinu 20 til 24 pund! Létu menn þá staðar numið, enda væntanlega orðnir stirðir í liðamótunum.

Þetta hlýtur að vera skemmtilegur veiðiskapur með afbrigðum, en hætt við að laxverndarsinnar brosi ekki, enda verið unnið að því hörðum höndum með miklu liði og peningum að stöðva laxveiðar í sjó. En það eru netaveiðarnar sem fókusinn hefur verið á. Kannski gleymdu menn þessum sportveiðum?




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica