Miklar sjóbirtingsgöngur í Vestur Skaft

Baldur Guðmundsson með glæsilegan birting úr Syðri Hólma í Tungufljóti. Mynd Gylfi Jón Gylfason.
Sjóbirtingsgöngur hafa verið sterkar síðustu daga í Vestur Skaft og heyrðum við í dag frábær tíðindi af bæði Tungufljóti og Geirlandsá. Mikið af fiski og stórir í bland eins og þær systur eru þekktar fyrir.
Ef við lítumj fyrst á Tungufljót, þá fengum við skeyti frá Gylfa Jóni Gylfasyni Suðurnesjamanni sem kíkti í Tungufljótið nú um helgina. Oftast nær þykja þessir dagar vera heldur snemma fyrir Tungufljót, en þess eru dæmi að menn hitta á fisk og skilyrði voru einmitt mögnuð fyrir fyrstu gönguna að þessu sinni, það þekkja Tungufljótsmenn þegar þeir lesa lýsingu Gylfa:

Baldur búinn að setja í annan...mynd Gylfi Jón.
Það var lítið búið að skrá í veiðibókina þegar við komum í veiðihús í gær(laugardag) tveir sjóbirtingar og að mig minnir þrír laxar. Það var því með hæfilegri bjartsýni sem við Baldur Guðmundsson félagi minn héldum niður á næst neðsta veiðistað árinnar og hófum veiðar. Við ákváðum að byrja neðan frá en þarna hagar svo til að áin er að eta úr meira en mannhæðarháum rofabakka. Meðfram rennur svo vatnið úr Tungufljóti en rétt utan við eru svo vatnaskil þar sem jökulvatnið blandast saman við. Það var mikið vatn í fljótinu, það hafði rignt stöðugt alla leiðina austur og sífellt bætti í vind. Um tíma var svo hvasst að spúnarnir hegðuðu sér eins og þeir væru í teiknimynd. Vegna vindsins snéru þeir stundum við í loftinu og lentu rétt við tærnar á okkur. Við grófum upp það þyngsta sem við áttum í boxinu og þá tókst að koma agninu út.

Gylfi Jón Gylfason með einn flottan úr Syðri Hólma. Mynd Baldur Guðmundsson.
Það var bót í máli að ekki þurfti að kasta langt því vatnaskilin voru ekki nema örfáa metra fra landi. Eftir um hálftíma veiði tók fyrsti fiskurinn og næstu þrír tímarnir voru ógleymanlegir. Við vorum stöðugt í fiski og enduðum á því að landa einum 3,5 kg laxi og10 sjóbirtingum á stöngina þessa fyrstu vakt, þeim stærstu 5 og 5,5 kg. Við Baldur hættum snemma á þessari vakt og fórum í hús bæði vegna þess að veðrið var orðið þannig að varla var stætt því sífellt bætti í vind og svo vorum við bara orðnir saddir. Allir sjóbirtingarnir voru óvenju vel haldnir. Félagarnir á hinum stöngunum voru einnig í fiski ofar í ánni en þar var hann tregari til að taka. Við urðum því miður að fara snemma en erum þess að sjálfsögðu fullvissir að hinar stangirnar verði áfram í veislunni á sunnudeginum.“
Þessi mynd frá Mörtungunefi í Geirlandsá verður að duga þangað til að við fáum einhverjar myndir frá Suðurnesjamönnum. Mynd gg.
Og það er sömu sögu að segja frá Geirlandsá, við fengum meldingu frá Arnari Óskarssyni gjaldkera SVFK í dag. Hann sagði:
Við sögðum frá því á vefnum okkar í vikunni að sjóbirtingurinn væri mættur á svæðið en okkur óraði ekki fyrir því að svo stórar göngur hafi hellst inn síðasta sólarhringinn sem raun ber vitni. Við tókum púls á þeim veiðimönnum, í hléinu í dag(sunnudag), sem eru í Geirlandsá núna og eru því búnir að veiða tvær vaktir. Á land eru komnir hvorki meira né minna en 26 sjóbirtingar og 2 laxar. Það byrjaði ágætlega hjá þeim í gærkveldi og voru menn ánægðir eftir fyrstu vakt með 5 birtinga en svo varð allt gjörsamlega brjálað í morgun þar sem þeir lönduðu 23 fiskum til viðbótar. Það er fiskur í öllum hyljum í ánni og sumir hverjir gjörsamlega stíflaðir af fiski. Mest af fiskinum er 3-6 pund en svo eru líka með í aflanum 9 og 12 punda fiskar. Þá fengust einnig tvær risahrygnur upp í Hagafossi sem var sleppt aftur og voru þær 82 og 84 cm langar. Örugglega fiskar sem eru 15-16 pundin samkvæmt sjóbirtingskvarðanum.“
Við heyrðum líka í Skúla Baldurssyni á Syðri Steinsmýri og sagði hann okkur að að síðasta holl í Steinsmýrarvötnum hefði landað 20 birtingum á bilinu 2 til 6 pund. Þar fer birtingi fjölgandi og verður að segjast eins og er, að það er langt síðan að jafn fjörugar sjóbirtingsveiðifréttir tóku að berast svo snemma septembermánaðar. Verður gaman að fylgjast með framhaldinu, því það verður að segjast eins og er, að síðustu tvö haustin hefur verið nokkur niðursveifla á sjóbirtingsmiðunum.
