Sigurópið skar dalinn

Fínasta veiði hefur verið í Fljótaá í Fljótum þó svo að metinu frá í fyrra stafi engin hætta af atburðum þessa sumars. Nýlega veiddist þar býsna vænn fiskur hvers vigt menn geta velt fyrir sér
Sá stóri.
Hjálmar Árnason sendi okkur mynd af vini sínum Birgi Bragasyni úr Keflavík sem landaði mjög flottum laxi úr ánni fyrir skemmstu. Að venju fylgdi með mergjuð frásögn sem við sleppum ekki að birta og kemur hér: „Nýlega var Birgir Bragason, veiðimaður úr Keflavík, á ferð í Fljótaá. Veiði þokkaleg og svo rann upp stundin. Kastað, undir var Snælda, svört. Allt fast, rykkt í og festan af stað. Hann er á!! Risi. Veiðmaður titrar en fiskur rýkur upp og niður hylinn. Annar spenntur en hinn argur. Og undrin gerast – lónbúinn snarar sér fyrir vænan stein hinum megin árinnar. Góð ráð dýr og örvænting á vörum. Línan hringuð um stein en heldur áfram að dragast út. Er þetta svona djúpt? Eða hvað? Tugum metra neðar með 90 gráðu átak á línuna stekkur sá stóri og hristir sig. Birgir á barmi áfalls, sannfærður um að nú verði hinn langþráði risafengur aldrei skráður. En viti menn – hann er á og með kunnugri lagni sinni smokrar Birgir línunni af steininum ljóta og ekki löngu síðar sker siguróp dalinn þar sem Birgir er kominn í hóp þeirra sem veiða þá stóru. Sigurinn var hans og fiskjarins sem varð frelsinu feginn og bíður þess nú að geta glatt annan veiðmann áður en hann finnur sér fallegan hrognasekk til að kynda. Lengd: 90 sm og óvenjudigur að mati Birgis. Nærri 20 pundum hvað sem öllum kvörðum líður.“
Já svo mörg voru þau orð. Hvað sem 20 pundum og kvörðum líður þá er í það minnsta hægt að taka undir að laxinn er með ólíkindum sver allur saman. Og við getum bætt við þetta, að þann 1.september voru komnir 235 laxar á land úr ánni, en metveiðisumarið í fyrra veiddust heilir 466 laxar. Veitt er langt fram eftir þessum mánuðu og ekki ólíklegt að áin verði öðru hvoru megin við 300 laxana þegar yfir lýkur. Þá hefur verið prýðisgóð sjóbleikjuveiði í ánni.
