votnogveidi_Fors_2009-04
eru þau að fáann

Gæti orðið metveiði í Kolku

4.9.2010

 

15 Jæja þá, eina enn....kvenþjóðin er falleg, ekki bara í mannheimum.

Flottur lax. Kolkusvæðið hefur gefið þó nokkra 10 til 14 punda laxa í bland við smálaxinn. Mynd Heimir Óskarsson.

Laxveiði í Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá, öðru nafni Kolku, hefur veriðs vo góð í sumar að það gæti dottið inn nýtt met. Leigutakinn Þórarinn Halldórsson segir að veiðin hafi verið sérlega góð að undanförnu.

„Ég fór nú sjálfur bara einn dag og setti í átta laxa og landaði þar af fjórum. Þeir sem komu á eftir mér, vanir menn, voru komnir með sjö á land áður en fyrsta vaktin var búin. Þetta eru þá orðnir um 60 laxar í ánni í sumar, allir nema einn úr Hjaltadalsánni. Metið er eitthvað ríflega 80 laxar, en það eru svo líflegar göngur núna að ég held að það gæti vissulega gerst núna að áin slái því við. Flestir þessara laxa sem hafa veiðst að undanförnu hafa verið nýgengnir,“ sagði Þórarinn í spjalli við VoV.

Þórarinn sagði að Berghylur og Fossinn væru að vanda gjöfulustu staðirnir, enda stæðu menn þar lengi. „Menn sjá laxa þar og reyna þess vegna lengi. Það er þó sniðugt að reyna víðar. Sjálfur fór ég í tvo staði sem enginn fiskur var skráður úr, grunaði að það stafaði af því að það hefði einfaldlega ekki verið farið í þá. Og það stóð heima, ég setti í laxa á báðum stöðunum. Bleikjuveiðin hefur líka verið góð. Að vísu ekki eins góð og í fyrra, en það kann að stafa af því að menn standa meira yfir laxinum,“ sagði Þórarinn.

Kolkusvæðið er annars skemmtilegt í meira lagi. Fyrir utan lax og sjóbleikju þá fer sjóbirtingsveiði vaxandi við ós árinnar, sérstaklega var það lífleg veiði snemma sumars. Þá er þetta ein af sárafáum veiðiám landsins þar sem menn kaupa með veiðileyfunum aðgang að gæsatúnum.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica