Smá viðbót við síðustu frétt

Frá Soginu. Reyndar er þetta Kúagilið frá Þrastarlundarbakkanum. Mynd gg.
Sogið er komið yfir þúsund laxa, óhætt er að segja að það hafi verið búið að ná þeirri töfratölu þann 1.9 sem var viðmiðunardagsetninginn í síðustu frétt okkar. Við vissum þá ekki Torfastaðatöluna, en vitum hana nú.
Einar Lúðvíksson, umsjónarmaður Eystri Rangár, Þverár í Fljótshlíð og Affallsins, hafði samband við okkur og reyndist hann lúra á tölunni úr Torfastöðum í Soginu. Skeytið frá Einari barst okkur í gærkvöldi, seint. Þá var talan 72 laxar, en áður var komin talan 932 samanlagt af svæðum SVFR. Það gerir 1.004 laxar og í dag er kominn 3.september þannig að áin búin að ná þessum áfanga með stæl og á eftir að hækka sig mikið því veðurhorfur eru góðar a.m.k. út næstu viku og mikið er af fiski í ánni.
Varla verður fram hjá því horft að þessar vaxandi veiðitölur ár frá ári í Soginu hljóta að eiga mikið undir netauppkaupum SVFR í Ölfusá neðan ármóta Sogs. Félagið á eitt ár inni af þeim samningum og spurning hvað gerist eftir það? A.m.k. tókst ekki að mynda breiða samstöðu hagsmunaaðila um frekari uppkaup á sínum tíma og Fiskræktarsjóður ákvað að hætta stuðningi við verkefnið. Hvað sem verður, þá væri mikil synd ef að allt félli í sama gamla farveginn á nýjan leik.
Þá bætti Einar við skeytið til okkar, að heildarveiði í Affallinu í fyrra hafi verið 102 laxar. Þetta er á sem Einar er að koma til með sleppitjarnarfyrirkomulagi þannig að hér er greinilega komin fjórða metveiðiá sumarsins. Talan frá 1.9 var 645, alls 543 löxum meira en heildartalan í fyrra. Og enn er veitt í Affallinu.
