votnogveidi_Fors_2009-03
eru þau að fáann

Margar ár með meiri veiði nú en allt síðasta sumar

2.9.2010

 

Tveir með hann á í einu í Eystri Rangá

Fjör við Eystri Rangá. Mynd Páll Ketilsson.

Laxveiðisumarið 2010 er afar gott þótt ekki sé met í vændum nema að eitthvað verulega óvænt gerist. Þann 1.september höfðu alls ellefu af viðmiðunarám LV á angling.is gefið meiri veiði heldur en allt síðasta sumar. Líklega eru þrjú met fallin.

Ein þessara áa er Eystri Rangá sem er efst á lista yfir aflasælustu ár landsins það sem af er. Eystri var með 4.721 lax, en í fyrra gaf áin alls 4.229 stykki. Það er 492 löxum meira og enn nokkrar vikur eftir. Hermt er að veiði hafi verið afar góð í vikunni, sumir dagar að gefa á annað hundrað fiska.

Þverá 2010

Falleg hrygna úr Kaðalstaðahyl í Þverá mæld. Mynd gg.

Þessi frétt er um árnar sem eru betri í dag en allt sumarið í fyrra. Næst þeirra í listanum er Þverá/Kjarrá sem var með 3.513 laxa þann 1.9. Í fyrra gaf áin 2.371 lax. Munar aldeilis um 1.142 laxa og enn er veitt í ánni þó tekið sé að styttast. Frábær vertíð í Þverá/Kjarrá.

Blanda er þriðja á þessum lista en talan hennar frá miðvikudeginum er 2.769 laxar. Það er metveiði. Metið sem féll var frá síðasta sumri, 2.413 laxar, eða 356 löxum minna. Mjög hefur hægt á Blöndu að undanförnu, fyrst kom yfirfall, svo dró úr því en áin náði aldrei réttum lit aftur. Eflaust mun talan hækka eitthvað smávegis þessa síðustu daga.

Lax þreyttur í Cave

Hellishylur, eða Cave í Haffjarðará. Mynd Yngvi Óttarsson.

Þá er Haffjarðará í alveg ótrúlega góðum málum miðað við hversu slæmur vatnsbúskapurinn hefur verið á Snæfellsnesinu í sumar. Hún var komin í 1.775 laxa, en gaf í fyrra 1.622. Munurinn 153 laxar og enn er dálítið eftir af vertíðinni.

Grímsá er og góð og hefur notið þess að hún hefur stöðugra rennsli en margar ár í Borgarfirði. Hú var með 1.656 laxa, en gaf í fyrra 1.339 stykki. Munurinn 317 laxar og einar þrjár vikur eftir.

Þá að Laxá í Aðaldal sem var komin í 1.280 laxa á miðvikudagskvöldið, en gaf allt sumarið í fyrra 1.117 laxa. Hún hefur verið á uppleið sú gamla og eins og marg hefur verið skráð þá er ótrúlega mikið af yfirstærðarlaxi í henni sumar. Laxar sem hún var alltaf fræg fyrir. Enn er nokkuð eftir af veiðitímanum og hagstæð veðurspá fyrir Norðurland næstu daga.

Elliðaá

Góð veiði var lengst af í Elliðaánum í sumar. Mynd Heimir Óskarsson.

Elliðaárnar eru líklega stopp núna, ef við munum rétt þá var þar aðeins veitt út ágúst, þannig að 1.september talan er hugsanlega lokatala í ánni. Talan er 1.141 lax, en slakt sumarið í fyrra gaf áin 880 laxa. Þetta er munur upp á 261 lax.

Fnjóská er næst á þessum lista og þar er búið að slá met. Áin full af laxi og var með 832 laxa á viðmiðunardeginum. Hún fór eitthvað yfir 500 metárið sitt fyrir margt löngu þannig að hér eru mikil tíðindi á ferð og enn slatti eftir af veiðitímanum. Stutt er síðan að 99 cm lax veiddist á neðsta svæðinu og í sama holli veiddist hnúðlax.

Laugardalsá er með nokkuð gamla tölu á angling.is, eða síðan 23.8 og sú tala er 501. Það er nákvæmlega lokatala árinnar frá í fyrra. Veitt er út ágúst í ánni þannig að hún er klárlega með hærri tölu á viðmiðunardegi heldur en veiddist í henni í fyrra.

Svartá er hérna líka, búin að gefa 451 lax þann 1.9 og allt sumarið í fyrra komum 428 laxar. Veitt er langleiðina út september þannig að þessi tala á eflaust eftir að snarhækka. Mikill lax er í ánni og skilyrði góð enn sem komið er.

Síðan kemur af lista LV Miðá í Dölum sem hafði gefið 404 laxa, en allt sumarið í fyrra komu 342 laxar úr henni. Þetta er athyglisverð tala ekki hvað síst vegna þess að miklir þurrkar hafa leikið Dalaárnar grátt stóran hluta vertíðarinnar.

Kastað á Neðra Horn í Sogi.

Frá Bíldsfelli í Soginu. Veiðifélagið Hattur á þessa mynd.

Þá er tæmdur listinn af lista LV á angling.is en við tínum samt til tvær ár til viðbótar. Önnur er Affallið sem er skráð á LV með 645 laxa. Talan frá í fyrra er ekki nefnd, en það sér hver heilvita maður að hún hefur verið langt undir þeim ósköpum sem þar eru í gangi í sumar.

Og síðast en ekki síst Sogið sem gaman væri að hafa á lista LV yfir viðmiðunarár miðað við þann gríðarlega uppgang sem þar hefur verið. Við nánast fullyrðum að þar sé búið að setja nýtt met. Eftir því sem við best vitum þá er gamla metið ekki eldra en eins árs,  en í fyrra veiddust um 730 laxar í ánni. Í sumar hefur allt saman nánast farið að límingunum. Þennan sama miðvikudag birti SVFR nýja veiðitölu af svæðum þeim sem félagið hefur á leigu. Eru það öll helstu svæði árinnar utan Torfastaðir. Alls voru komnir 932 laxar af svæðum SVFR og má alveg reikna með því að í það minnsta 20-30 laxar og kannski meira hafi veiðst á Torfastöðum. Áin er því alveg við þúsund laxa markið og metið frá í fyrra fallið. Við höfum flett talsvert og gramsað og ekki fundið hærri sumarveiðitölur fyrir Sogið, þannig að á meðan við vitum ekki betur þá lýsum við þessu sem meti. En endilega leiðrétti okkur hver sá sem kann að vita betur.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica