Veiðiveisla norður í Reykjadal
Gylfi Jón búinn að setja í vænan lax í Halldórshyl.
Þær eru ansi margar árna og vötnin líka sem sjaldan rata í fréttirnar. Ein slík á er Reykjadalsá í Reykjadal í Suður Þingeyjarsýslu, en þar hefur veiði verið mjög góð í sumar þrátt fyrir að áin hafi um tíma verið afar vatnslítil vegna þurrka.
Margir geta sagt sekmmtilegar sögur úr Reykjadalnum i sumar, einn þeirra er Gylfi Jón Gylfason sem fór fyrir hópi í ánni daganna 18.-22.ágúst. Það hafði rignt og mikið slý tekið upp og hreinsast úr ánni. Gefum Gylfa orðið: „Við lentum í kjörskilyrðum fyrir laxveiði, þarna var mikið vatn og ágætis lofthiti fyrstu tvo dagana svo hrundi lofthitinn og allur fiskur hætti að taka. Í miklu vatni finnst mér veiðast mikið minna af urriða þarna og sú var líka raunin í þetta skipti, við fengum samt um 100 urriða sem þykir ekkert sérstakt á þessum slóðum.
Hér er að styttast í leikslok.
Reykjadalsá er fyrst og fremst urriðaveiðiá og er algeng stærð á urriða sitt hvoru megin við 40 cm. Þarna gildir því að vera með léttar stangir og njóta þess að sjá fiskinn taka því mikið af fiskinum er tekinn á það grunnu vatni að um hreinar yfirborðstökur er að ræða og kemur fiskurinn oft eftir flugunni langa leið og með látum. Þurrfluguveiði er eiginlega það alskemmtilegasta og er þetta ein af örfáum ám þar sem hægt er að lenda í magnveiði á þurrflugu. Þessi túr var óvenjulegur fyrir þær sakir að við fengum fimmtán laxa fyrstu tvo dagana en slíkt magn er óvanalegt á þessum slóðum. Af þeim voru 5 tveggja ára laxar. það skemmtilega við þessa laxa var að við vorum náttúrulega komnir til að veiða silung og komu flestir laxarnir því á hefðbundnar silungaflugur. Pheasant tail skilaði einum 5 löxum Rektorinn 5 og restin utan einn komu á smáar flugur.
Laxinn var settur í klakkistu og hér er Gylfi kominn seinna til að stilla upp fyrir myndatöku, en laxinn berst um á hæl og hnakka...
Það var enginn sérstakur staður að gefa meira en aðrir við vorum að taka þetta um alla á, þó ekkert á neðsta svæðinu. Ég fékk sjálfur gullfallegan lax í Halldórshyl sem ég áætlaði út frá lengd 14-15 pund. Ég var einn og í mesta basli með að landa fiskinum háflaus. Kom honum eftir langa mæðu á land og ætlaði þá að reyna að ná myndum af skepnunni. Hann reyndist ótrúlega feiminn því í hvert skipti sem ég brá myndavélinni velti hann sér í leðjunni og varð hinn ófrýnilegasti. Ég var hræddur um að honum yrði meint af landdvölinni og ákvað að hlaupa með hann í klakkistuna sem þarna var rétt hjá og koma bara seinna til að taka myndir.
Þetta hafðist þó og hér fer fram mæling á hrygnunni.
Það gerði ég daginn eftir en reynslumeiri félagar glottu og vildu endilega fá að koma með og horfa á aðfarirnar. Þeir stilltu sér upp fyrir ofan klakkistuna með popp og kók og fylgdust með. Þeir skemmtu sér konunglega og tóku bakföll af hlátri við aðfarirnar. Það er nefnilega þannig að það er ekki hægt að sporðtaka óþreyttan 15 punda fisk og taka hann gegn vilja og stilla upp til myndatöku. Ég varð náttúrulega allur rennblautur og er þegar þetta er skrifað enn aumur í hendinni en hann slengdi mér utan í kistuna þegar ég var að mannhöndla hann ofan í griðastaðnum. Þetta tókst þó að lokum og vona ég að mér takist að senda þér myndirnar áfallalaust.
Og síðan pósa áður en fiskurinn var settur aftur í kistuna...
Öðru ævintýri lenti silungsveiðimaðurinn Sigurður E. Sigurðsson í þegar hann var að veiða í Rörinu svokallaða en það er ræsið sem liggur undir veginn áleiðis til Mývatns. Þar liggur oft vænn silungur og gaman að veiða sig andstreymis með litla stöng og litlar flugur inn í rörið því svo hátt er til loftst að auðvelt er að athafna sig með stangir af stærðinni 3-4. Hvisshljóðið í línunni magnast upp inni í rörinu og tökurnar og skvampið ótrulega skemmtilegar. Sigurður var að byrja að vinna sig upp rörið þegar hann setur í vænan tveggja ára lax, andstreymis á silungaflugu nr 14. Sá hængur komst á land og endaði í klakkistunni, áætlaður út frá lengd 17 pund. Sigurður gafst ekki upp á rörinu og hélt áfram að kasta andstreymis með litlum silungaflugum og endaði á að landa hrygnu sem var líka áætluð 17 pund. Báðir þessir fiskar voru settir í klakkistuna.“
