votnogveidi_Fors_2009-05
eru þau að fáann

Af birtingum og stórlaxi

1.9.2010

 

Tóti með 20 punda lax

Þórarinn Kristinsson með 20 punda laxhæng úr Faxanum í Tungulæk.

Meira af snemmgengnum sjóbirtingi, talsvert virðist vera gengið af birtingi í bæði Grenlæk og Tungulæk, sem eru að upplagi sama áin sem greinist í tvær ár í Eldhrauninu. Gríðarlega mikið vatn hefur verið í þeim báðum í sumar. Þá veiddist nýverið 20 punda lax í Tungulæk!

Þórarinn Kristinsson eigandi Tungulækjar sagði í samtali í dag að það kæmi alltaf snemmgenginn birtingur strax í júlí, en í sumar hefði verið meira on oft áður og eftir því sem liðið hefur á ágúst hefur aukist kraftur í göngurnar. „Ég er nú ekki með tölurnar haldbærar, en flestir eða allir sem hafa verið að koma og veiða hafa veitt vel, bæði lax sem talsvert var af eina ferðina enn, og svo birting.

Drengir með flotta birtinga

Kristinn Þórarinsson með fallegan birting úr Tungulæk.

Sjálfur fór ég ekki varhluta af laxinum í sumar, því ég landaði fyrir skemmstu 100 cm hæng sem er samkvæmt kvarðanum 20 pund. Laxinn fékk ég í Faxanum og hann fékk að halda lífi. Ég fékk annan eins lax fyrir 2-3 árum í ánni, en það er eu ekki stærstu laxarnir því Sverrir Hermannsson veiddi 27 punda í Tungulæk fyrir fjöldamörgum árum. Annars er eftirtektarvert hversu mikið vatn hefur verið í Tungulæk í allt sumar og stafar það af mikilli bráðnun í jöklinum sem stafar af hlýindum og öskunni úr Eyjafjallajökli sem eykur bráðnun. Fyrir vikið hefur Skaftá verið gríðarlega mikil og runnið inn á hraunið, en þaðan sígur vatnið ofan í hraunið og skilar sér undan því aftur sem hreint lindarvatn í Tungulæk og Grenlæk,“ sagði Þórarinn.

Valur Ketils með bolta birting

Valur Ketilsson með 9 punda birting úr Landbrotsárhyl í Grenlæk.

Við heyrum af Val Ketilssyni sem var með félögum sínum fyrir skemmstu á svæði 5 í Grenlæk, svæði sem kennt er við Seglbúðir. Hann tók undir orð Þórarins með vatnsmagnið og einnig að fiskur væri genginn í ána í nokkrum mæli. Ekki sést að öllu jöfnu til laxa í Grenlæk, en Valur sagði sjóbirtinga og staðbunda urriða dreifða um flest öll veiðisvæði og veiddi hópur hans 10 birtinga sem flestir voru í kring um 3 pund. Einn var þó sýnu lang stærstur, 9 punda fiskur sem Valur veiddi sjálfur í Landbrotsárhyl á Flæðarmús. „Birtingurinn tók illa í birtunni og hagar sér öðru vísi en laxinn. Fer í meira tökustuð á kvöldin og þessi stóri var tekinn um klukkan níu í rökkrinu,“ sagði Valur, en annars fengust flestir fiskarnir á ýmsa Nobblera, Sunrey og Snældur.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica