votnogveidi_Fors_2009-03
eru þau að fáann

24 punda urriðatröll úr Heiðarvatni.

31.8.2010

 

Risaurriði úr Heiðarvatni

Menn virðast hálf slegnir yfir tröllinu, en þessi virðist vera staðbundinn. Myndina tók Martin Falklind.

Heiðarvatn í Heiðardal ofan Mýrdals hefur lengi verið þekkt fyrir stóra staðbundna og sjógengna urriða. Fyrir skemmstu veiddist þar einn 24 punda á svartan Nobbler!

Að sögn Ásgeirs Ásmundssonar sem hefur umsjón með vatninu og sér um veiðileyfasölu í það, var það Claes Bourghardt sem veiddi skepnuna á Nobblerinn. „Fiskurinn var vigtaður í háf að lokinni viðureign og var hann slétt 12 kíló, eða 24 pund.  Annars hefur vatnið verið að gefa flotta veiði en misjafnar áherslur veiðimanna geta skipt miklu máli í aflabrögðum. Þá er átt við að sumir sækja meira á bleikjusvæðið í vatninu og veiða gjarnan mjög vel á meðan aðrir leita að birting eða urriða með tilheyrandi aflahrotum.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica