Besti dagurinn í Vatnsá
Veiðimaður að þreyta lax í Vatnsá í vikunni. Myndir eru allar frá Ásgeiri Ásmundssyni.
Gærdagurinn var sá besti í Vatnsá í Heiðardal í allt sumar og áin hefur gefið yfir 300 laxa. Besti tíminn er eftir, þannig að sýnt þykir að vertíðin verði frábær, enda mikið af fiski í ánni og stöðugar göngur.
Það er sitthvað hlutskipti Skógár og Vatnsár sem báðar eru undir umsjón Ásgeirs Ásmundssonar. Tíðrætt hefu rverið um vandræði Skógár, en Vatnsá, aðeins lítið eitt austar, er í fantagír. Hér er pistill frá Ásgeiri:
Vænn birtingur kominn að landi.
„Vatnsá hefur verið í hörkugír að undanförnu og er besti ágústmánuður að líða sem menn muna eftir. Vatnsá hefur alltaf verið síðsumarsá og er gjarnan besti tíminn ár hvert með straum um þessi mánaðarmót, það breyttist ekkert þetta sumarið þrátt fyrir að nú var lax gengin mjög snemma í ána því góðar göngur virðast hafa komið nú líkt og beðið var eftir. Besti dagurinn þetta sumarið var svo í gær þegar allskyns flugur gáfu 47 laxa veiði.
Laxi sleppt í Vatnsá í vikunni.
Fiskur er um allt og gaf Hauksholan 12 af þessum löxum. Þá er eitthvað gengið af stórum birtingi í bland og slapp einn ca 14-16 punda í Kerlu nýverið og fylgdi þeirri sögu að það mætti ekki hirða þá og því var bara ekki um neitt annað að ræða en að slíta þegar fiskurinn var kominn að landi. Ekki er öll vitleysan eins. Veiðin í sumar hefur verið mest á litlar pöddur og gárutúpur á flotlínum. Veiðin er komin yfir 300 laxa og er að nálgast lokatölur frá því í fyrra en september er ávallt gjöfull í Heiðardal.“
