votnogveidi_Fors_2009-03
eru þau að fáann

Góð birtingsskot í Eldvatni

31.8.2010

 Hann er með fisk i Eldvatni vor 2009

Mynd frá Eldvatni. Hugsanlega fáum við nýjar myndir bráðlega.

Sjóbirtignsveiði fer oft fyrr af stað í Eldvatni heldur en í öðrum bergvatnsám í Vestur Skaft. Þar hafa komið góð skot að undanförnu.

Pétur Pétursson er leigutaki Eldvatns og sagði hann veiðina fara „skratti vel“ af stað. „Það voru menn fyrir nokkru, 20-23.ágúst, og þeir sáu talsvert af fiski og lönduðu 16-18 fiskum, bæði laxi og birtingum. Lax hefur verið að aukast í ánni síðustu ár og hann mega menn hirða, en ætlast er til að birtingum sé sleppt. Þá voru kunnugir menn nýlega part úr degi og veiddu vel og sáu líka talsvert af fiski og víða. Loks var að fara hópur úr ánni sem var með 20 birtinga og 5 laxa. Þetta verður að teljast gott og kannski að áin sé að byrja að rétta sig við eftir nokkur mögur ár,“ sagði Pétur.

Það er athyglisvert að birtingur sé jafn áberandi og raun ber vitni, en ýmsir hafa þá kenningu að hann veiðist fyrr í Eldvatni heldur en öðrum ám í héraðinu vegna þess að áin hefur ós beint til sjávar, en rennur ekki í jökulfljót eins og hinar árnar, en jökulárnar hafa tilhneigingu til að hægja á göngu sjóbirtings. A.m.k. er það vel þekkt að birtingur fer að veiðast á Hólmasvæði Skaftár í júlí, í Vatnamótunum í ágúst og svo loks í bergvötnunum í september!




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica