votnogveidi_Fors_2009-05
eru þau að fáann

Haffjarðará frábær en vatnsbúskapurinn skelfilegur

31.8.2010

 Haffjarðará - veiðihúsið

Frá Haffjarðará. Mynd Yngvi Óttarsson.

Haffjarðará er ein af aflahæstu ám sumarsins og þar er frábært veiðisumar í fullum gangi, en lýsingar á vatnsbúskap Snæfellsnes eru þó vægast sagt hryllilegar og spurning hvar þetta endar allt saman.

Við heyrðum í Einari Sigfússyni í dag, en hann er einn eigenda Haffjarðarár. Það var gott hljóð í honum en að sumu leyti þó blendið. Gott hvað varðaði veiðina, en blendið er talið barst að vatnsbúska á svæðinu. „Hér er mikil og góð veiði og alveg bullandi lax. Komnir um 1.700 fiskar á land sem er meira en allt síðasta sumar. Og fiskur enn að ganga. Þá er mjög mikið af vænum laxi í ánni og við erum með nokkra tuttugu punda og svo einn 23 punda stærstan. Það er einn um 30 pundin í Sauðhyl en hann hefur ekki látið glepja sig enn sem komið er. Þá er beinlínis mikið af 14 til 16 punda laxi,“ sagði Einar.

En aðspurður um vatnsbúskap og regn sagði hann: „Það er sæmilegt vatn í bili. Það rigndi þokkalega í kring um 20.ágúst og svo einhverjir skúrir síðan, en í raun er ástandið skelfilegt. Það rennur varla í ána frá Oddsstaðavatni og áin fær vatnið sitt úr giljum og undan hrauninu. Vötnin hér í kring eru allt að 6 metrum undir venjulegu vatnsborði. Manni finnst t.d. Hlíðarvatn nánast vera að þorna upp og frá þeim bæjardyrum séð með ólíkindum hvað þó rennur um farvegina hérna




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica