votnogveidi_Fors_2009-02
eru þau að fáann

Flugur í fókus við Hofsá

30.8.2010

 Veitt í Fosshyl í Hofsá

Magnús Böðvar Eyþórsson lætur fluguna skauta yfir laxa í Neðri Fosshyl. Mynd Jón Eyfjörð. 

Menn spyrja sig oft og iðulega í byrjun veiðiferðar: Hvað skyldi hann taka? Stundum er það hefðbundið og stundum ekki og stundum tekur hann ekki neitt! 1/3 af VoV var í Hofsá um helgina og þar skáru tvær flugur sig nokkuð úr.

6 pundari úr Hofsá

Jón Eyfjörð með 6 pundara sem tók andstreymiveiddan Krók nr 14! Mynd Magnús Böðvar.

Hofsárlax með Krók í kjaftvikinu

Hér má sjá hvernig Krókurinn kræktist utan á kjaftvikið þgar hann renndi sér á fluguna...

Þarna var veitt í þrjár vaktir á laxasvæðunum og síðan tvær á bleikjusvæðunum. Það var kalt og fremur hráslagalegt veður. Laxveiðin svona þokkalegt kropp. Okkar maður, Jón Eyfjörð og veiðifélagi hans settu í alls sjö laxa og náðu að landa þar af tveimur. „Tóku grannt,“ sagði Eyfjörð. Enn tveir laxanna komu úr heldur óvæntri átt. 

Allt í keng í Hofsá

Slegist við einn stóran sem tók Krókinn andstreymisveiddan, en þessi hristi sig lausan...mynd Magnús Böðvar.

„Það var í hylnum Laxa.  Þar fengum við 6 punda lax og ég öppstímaði hann á Krók. Hann tók reyndar ekki Krókinn, heldur húkkaðist hann í utanvert kjaftvikið á laxinum þegar hann kom í hana, eins og sést á einni myndinni. Þetta er stærð 14 af þessari undraflugu eftir Gylfa heitinn Kristjánsson. Við settum einnig í annan lax í Laxa á rauðan Frances og ég missti svo einn stóran lax sem ég öppstrímaði líka á Krókinn. Sá tók í Arnarhólshyl á svæði 5. Stór og mikill hylur sem geymir án efa talsvert magn af laxi.  Við lönduðum svo einum öðrum laxi, 4 punda á Black and Blue. Annars  var minnkandi vatn í ánni og kalt í veðri. Fyrrverandi leigutaki hafði yfirgefið svæðið og bændur tekið við. Orri Vigfússon var að koma með sína menn þarna að veiða, m.a. Morten hinn færeyska.

Fellshylur í Hofsá

Bleikja búin aðð hremma Selmu Dröfn íhjá Magnúsi  í  Fellshyl. Mynd (og að neðan) Jón Eyfjörð.

Bleikjur úr Hofsá

Tvær vænar bleikjur úr Fellshyl og Selma Dröfn liggur á tálknbarðinu á annarri þeirra, broddaklippt bleik og hvít með tungsten haus.

Hann var búinn að veiða eina vakt þegar ég fór og var búinn að fá einn. Sturla Örlygsson var þarna einnig með erlendan veiðimann og fékk hann þrjá á fyrstu vakt og var svo að kroppa eftir það. Það hefur verið talsvert af tveggja ára laxi í aflanum í Hofsá í sumar og ég man eftir a.m.k. þremur frá 100 og upp í 103 cm sem eru stærstir í sumar,“ sagði Jón.

Síðan lá leiðin niður á bleikjusvæðið og þar var helst tíðinda að vænta í þekktum hyl, Fellshyl sem er svartur af sjóbleikju. En dyntótt er hún og við reyndum margt án þess að hreyfa fisk. Það sem breytti öllu og skipti sköpum var þegar við settum á Selmu Dröfn eftir Súdda í Breiðdalnum og strippuðum hana hratt í gegnum hylinn. Algjör undrafluga. Þá varð allt vitlaust og við settum í tuttugu stykki á stuttum tíma og náðum að landa um helmingnum. Þetta voru fínar bleikjur, upp í 3 pund.“




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica