Með tíu um og yfir 20 pundin!
Víðidalsá er komin með um eða yfir 1.000 laxa og hefur veiði verið góð að undanförnu, en það er stórlaxastatusinn sem vekur athygli. Við höfum heyrt af alveg hreint mögnuðum hrotum í ánni, m.a. einni sem er næstum óraunveruleg!

Stefán Kristjánsson með fallegan lax.
Við heyrðum í Einari Fal Ingólfssyni sem veiddi í ánni tvær vaktir fyrir skemmstu og landaði hann ásamt félaga sínum fimm löxum og misstu þeir og nokkra. Þrír laxar voru 83, 87 og 98 cm, en veiði þeirra félaga þótti ekkert sérstök, því þarna voru menn að gera miklu stærri hluti. „Stefán Kristjánsson var í Dalsárósi þessa fyrstu vakt sem við veiddum og hann landaði 11 löxum. Fékk síðan alls 40 laxa á fjórum dögum og hvort sem menn trúa því eða ekki, þá var hann með tíu laxa þar af sem voru um eða yfir 100 cm og upp í 105 cm ef ég man rétt. Á sama tíma voru menn að setja í ferlíki um alla á þó að enginn hafi komist nærri Stefáni. En þetta er merkilegt, það er smálaxaskortur, en bara svo mikið af boltafiski að það meira en bætir það upp. En Stefán er búinn að vera við ána í allt sumar og veit upp á hár hvar þessir stóru liggja. S‘iðan kemur hann sjálfur til að veiða og skilyrði eru með besta móti. Þá hlaut eitthvað að gerast,“ sagði Einar.

Það er kominn þessi tími sumars, eða vertíðar sem stóru laxarnir fara að pirrast og taka betur. Það er ekki leiðinlegt þegar jafn mikið er af þeim og raun ber vitni. Í Vatnsdalsá hafa menn ekki farið varhluta af þessu frekar en í Víðidalnum. Þar veiddist á föstudag sá stærsti það sem af er úr ánni í sumar, 106 cm hængur í Hnausastreng (mynd að ofan fengin af www.vatnsdalsa.is ) og fleiri næstum því jafn stórir hafa verið að veiðast síðustu daga, auk þess sem einn beinlínis ferlegur slapp í Rofabakka. Sá var talinn allt að 120 cm og voru mörg vitni að hálftíma langri glímunni. Gefum Benedikt leiðsögumanni við ána orðið:
„Stærsti lax sem fengist hefur úr Vatnsdalsá það sem af er sumri veiddist í Hnausastreng í gær. Um var að ræða 106 sm hæng sem mun hafa verið vigtaður slétt 12 kg sem er í samræmi við VMST skalann. Sama dag þá slapp hrikalegt tröll í Rofabakka. Sá fiskur hefur sýnt sig í hylnum öðru hverju í sumar og það fór auðvitað svo á endanum að einhver setti í hann. Eftir 30 mínútna harða baráttu þá slapp hann en fjölmörg vitni voru að þessari atburðarrás. Það var mál manna að þarna færi mun stærri lax en sá sem fékkst í Hnausa fyrr um morguninn. Reyndir leiðsögumenn töldu laxinn vera einhvers staðar í kringum 120 sm en fiskurinn stökk og kom mjög nærri landi áður en hann slapp.“

Svipað hefur því verið uppi á teningnum í Vatnsdalsá og í Víðidalsá, þeir stóru hafa bært á sér hressilega. Okkur hefur orðið tíðrætt um Laxá í Aðaldal í sumar, en án þess að taka neitt frá henni þá er gaman að geta sagt frá því að stórlaxar séu að veiðast víða. Á laugardaginn veiddust t.d. tveir í Vatnsdalnum, 100 og 105 cm, 20 og 23 punda, á föstudaginn sá 106 cm 24 punda og á fimmtudaginn 100 cm, 20 punda. Þann 21.8 veiddist síðan 102 cm, ríflega 21 punda. Allir þessir fiskar að einum undanskyldum í Hnausastreng. Myndin að ofan sýnir Hnausastreng á neðri hluta myndar, en ofar eru Hólakvörn, Skriðuvað og Flóðið. Myndin er frá www.vatnsdalsa.is
Og síðan má ekki gleyma Miðfjarðará. Hún er ekki jafn þekkt fyrir þessa súperstóru, en slíkir hafa einnig sést þar, nýverið sögðum við t.d. frá tveimur úr ánni sem voru 100 og 103 cm og fleiri höfðu veiðst fyrr í sumar.
