votnogveidi_Fors_2009-02
eru þau að fáann

24 pundari á land – annar stærri sleit flugulínu!

28.8.2010

 

24 pundari og félagarnir samgleðjast

Ari Hermóður með laxinn sinn og félagarnir samgleðjast. Mynd frá Árna Pétri Hilmarssyni.

Það er enginn endir að því er virðist á stórlaxasögum úr Laxá í Aðaldal. Áin er full af 20plús þungum löxum og það líður varla sá dagur að einhvers staðar í ánni sé ekki í það minnsta einn drifinn á land. Í morgun hélt veislan áfram með 105 cm hæng.

Árni Pétur Hilmarsson sendi okkur skeyti eftir eftirminnilega morgunvaktina og sagði: „Veislan heldur áfram á Nesveiðum. Í morgun komu 7 fiskar og þar af einn 105cm vigtaður 12kg. Veiðimaðurinn var Ari Hermóður Jafetsson og var hann að rjúfa 20p múrinn í fyrsta skipti. Flugan var Dimmblá keilutúba 1/2 tomma. Veiði hefur verðið gríðarlega góð, síðustu tvö þriggja daga holl enduðu í 40 löxum og 34 löxum. þetta er sjötti laxinn á nokkrum dögum sem landast í stærðarflokknum 104 cm -110 cm og eru þá ótaldir allir venjulegu stórlaxarnir 75-95 cm. Nokkrir laxar eru á sveimi sem eru í algjöri yfirstærð og misstist einn í morgun  í  Höfðahyl sem var klárlega yfir 30 pund en hann endaði með að slíta flugulínu veiðimannsins eftir u.þ.b. 10 mín. baráttu."




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica