Fleiri stórlaxar
Sá stóri úr Svalbarðsá. Mynd Pálmi Einarsson.
Það eru stórlaxaveislur víðar en í Aðaldalnum þó svo að tölur yfir slíka laxi jafnist ekki á við Drottninguna. Veiðimenn í Svalbarðsá og Norðurá hafa t.d. landað 20 pundurum nú í lok vikunnar. Í Norðurá er það lax númer tvö í sumar og er það óvenjulegt.
Pálmi Einarsson hefur verið í Þistilfirðinum leiðsegjandi óvönum manni í Svalbarðsá að undanförnu og sá hinn sami datt í lukkupottinn. Gefum Pálma orðið: “Ég er i Svalbarðsá med client, veiðimaðurinn hefur aldrei sett i lax áður. Var með hann i Litla Fossi og buinn ad setja 4 litlar flugur undir og láta hann strippa yfir tökustaðinn. Þegar ég setti á litla Green Brahan conehead med #16 krók og sagði honum ad þessi myndi fara aðeins undir og við skyldum sjá hvað hún myndi gera. 95cm og virkilega feitur karl hafðist uppúr krafsinu eftir 35 minútur. Hann var klárlega 20 pund en skv. kvarða er hann 8.7kg (held eg). Ég var búinn að segja honum ad hann yrði ad bíta veiðiuggann af fyrsta laxinum sem hann myndi veida en sagði vid hann ad hann fengi ekki ad bita i þennann…”

Tröll númer tvö úr Norðurá, 97 cm og 20 pund. Rögnvaldur Jónsson með tröllið. Myndin er fengin af www.svfr.is
Á myndinni sem Pálmi sendi okkur af hinum erlenda gesti má glöggt sjá hvers vegna hann er sannfærður um að laxinn sé 20 pund. Hann er gífurlega þykkur. Eiginlega þykkur með afbrigðum. En það er rétt munað hjá Pálma, kvarðinn segir að 95 cm lax sé 8,7 kíló, eða um 17,5 pund eða svo.
En síðan urðu tíðindi í Norðurá í Borgarfirði og sú mikla smálaxaá gaf sinn annan lax á sumrinu sem teygir sig í 20 pundin. Frá því var greint á vef SVFR að Rögnvaldur Jónsson hefði veitt laxinn í Efri Ferjuhyl, sem er rétt neðan við Króksbrú. Laxinn var 97 cm. Á myndinni sést að hann er einnig nokkuð leginn og því væntanlega verið nokkru þyngri þegar hann var nýgenginn. Laxinn tók hálfrar tommu svarta Frances með keilu. Myndina fengum við að láni af vef SVFR, http://www.svfr.is/
