Fjórar í topp tíu komnar fram úr tölu sinni frá í fyrra

Eystri Rangá er nú efst og öllum á óvörum er Ytri dottin ofan í annað sætið. Mynd Heimir Óskarsson.
Eystri Rangá er komin í efsta sætið og það nokkuð afgerandi. Síðustu sumur hefur Ytri Rangá eignað sér það sæti, en áin er talsvert á eftir sjálfri sér ef miðað er t.d. við síðasta sumar. Þriðja er Þverá/Kjarrá og ljóst að þar í pípunum afburðasumar! Síðan má nefna að á topp tíu lista eru Blanda, Haffjarðará og Grímsá komnar yfir heildarveiði sína 2009.
Laxi sleppt. Mynd Vigfús Orrason.
Jú, við rýnum aðeins í nýjustu tölur á angling.is og af þeim má ráða að víða hefur veiði tekið aftur við sér eftir hina löngu, löngu þurrka. En það er Eystri Rangá sem hefur stolið senunni. Jafnan hin síðustu ár hefur Ytri Rangá „átt“ toppsætið, en ljóst er að þó að enn sé langt til vertíðarloka þar þá vantar talsvert upp á þó að veiði þar sé góð. Eystri Rangá var komin með 3.955 laxa s.l. miðvikudagskvöld, en heildartalan hennar í 2.sæti í fyrra var 4.229 stykki. Það hefur breikkað bilið á milli Rangánna frá síðustu viku, en Ytri ásamt vesturbakka Hólsár er nú með 3.584 laxa. Lokatala þar í fyrra var 10.749 laxar. Þverá/Kjarrá er í ógnar formi og er með 3.333 laxa, en heildartala hennar í fyrra var 2.371 og þótti prýðilegt. Enn eru góðir dagar eftir og skilyrði alveg bærilega góð enn sem komið er.

Víðidalsá er ekki á topp tíu lista þessum, en væri það eflaust ef reiknað væri út samkvæmt meðalveiði á stöng. Áin er og með sinn skammt af boltalöxum, hér er vinur vor EInar Falur Ingólfsson með 98 cm tröll sem hann landaði á dögunum.
Blanda er nú dottin niður í fjórða sætið, en talan fyrir hana á angling.is er frá 18.ágúst. Það er fyrir nokkru komið yfirfall í Blöndu og tölur þar að hækka mjög hægt. En hún var frábær á meðan allt var í orden og var með 2.739 laxa þ.18.8 sem er nýtt met fyrir ána eins og við höfum fyrir löngu greint frá. Miðfjarðará hefur verið „næst besta“ áin í Húnaþingi í sumar en hún er án vafa komin fram úr Blöndu í dag þó að við höfum hana fyrir neðan eins og listi angling segir til um.
Miðfjarðará var komin í 2.724 laxa. Miðfjarðará er mögnuð og enn í uppsveiflu mikilli þó að ekki sé alveg sami hrikalegi slátturinn á ánni og í fyrra. Rafn Valur leigutaki sagði við okkur í vikunni: „Eftir smá rigningu í fyrradag (mánudag) fór allt af stað í Miðfjarðará. Síðustu tveir dagar hafa gefið 230 laxa á stangirnar 10. Mikið líf er á öllum svæðum og töluverður hluti af aflanum er stórlax. Þeir tveir stærstu síðustu tvo daganna voru 100 cm úr ómerktum stað í Núpsá og 103 cm fiskur úr Hríseyrarhyl í Vesturá. Þá höfum við verið að sjá eitthvað af nýjum fiski í Miðfjarðaránni sem nú er að ganga eftir að vatnið jókst og vatnið kólnaði. Það eru því spennandi dagar í vændum í Miðfjarðará.”

Veiðimaður reynir fyrir sér skammt ofan við Glanna í Norðurá fyrir fáum dögum. Mynd Heimir Óskarsson.
Norðurá hefru tekið við sér. Heimir Óskarsson hjá VoV var í ánni í síðasta holli fyrir rigningu og sagði hann að duglegur hópur með sex leiðsögumenn hefði náð að merja 15 laxa úr ánni, en síðan skánaði ástandið og áin tók við sér. Og er nú komin yfir 2.000 laxa, nánar tiltekið í 2.080, en alls gaf áin í fyrra 2.408. Í gamla daga átti áin það til að “deyja” undir lokin, en þurrkasumrin hafa breytt því heldur betur og nú vona menn að haustdagarnir gefi vel.

Réttarhylur, á efri hluta Selár. Mynd gg.
Selá er næst og komin í 1.694 laxa en gaf í fyrra alls 1.993 laxa. Síðan kemur Haffjarðará með 1.660 laxa og er það meira en allt síðasta sumar, en þá gaf áin samtals 1.622 laxa. Þá er Langá loksins komin í gang aftur. Smá væta og maðkaholl hafa rifið töluna upp, enda var af nógu að taka í ánni. Talan nú komin í 1.523 laxa, en til samanburðar veiddust í ánni 2.254 laxar í fyrra. Mánuður eftir í ánni, því getur allt gerst.
Og loks, ef við höfum þetta “topp tíu” í þetta skipti, þá er Grímsá í tíunda hólfinu með 1.523 laxa. Hún ætti kannski að teljast frekar í níunda hólfinu því það eru færri stangir í henni heldur en Langá og svo er G á undan L í stafrófinu! Og Grímsá er líkt og Þverá/Kjarrá, Blanda og Haffjarðará, komin yfir heildarveiði sína síðasta ár. Grímsá nú komin í 1.523 laxa, en í fyrra gaf áin 1.339 stykki.
Neðar á listanum er fullt af þekktum ám sem sumar hverjar væru inni á þessum lista hér á kostnað annarra í krafti þess að þar er meiri meðalveiði á hverja stöng. En það er önnur saga og listinn er sem fyrr á http://www.angling.is/
