Af stórum fiskum og smærri í Minnivallalæk

Magnaður urriði, 7-8 punda, úr Minnivallalæk í gærmorgun. Mynd gg.
Veiði hefur verið góð í Minnivallalæk það sem af er og heildartalan farin að nálgast 300. Þar hefur bæði verið óvenjulega mikið af risaurriða auk þess sem talsvert hefurborið á smærri fiski þegar liðið hefur á sumar. Veit það á gott fyrir næstu sumur.

Stóri fiskurinn að ofan tók þessa straumflugu. Einhvers konar Nobbler með keilu, eða hvað? Mynd gg.
VoV kíkti í Lækinn í byrjun viku. Örstutt stopp skilaði þremur urriðum. Síðustu vikur hafa þurrflugur verið að gefa best, en þær hreyfðu ekkert fyrir okkur. Það gerðu smáar straumflugur, hraðstrippaðar, hins vegar. Stoppið var örstutt og aðeins litið á tvo veiðistaði, Húsabreiðu og Stöðvarhyl. Um tíma gerði logn og voru uppitökur út um allt. Þegar gengið var með ánni sást að mikið af fiskinum var frá pundi og upp í 2 pund. Mikið var af smærri fiski með bökkum, en í báðum hyljum var enn fremur talsvert af vænni fiski og einn sem við lönduðum, var að vísu ekki mældur og veginn, en álitinn 7-8 pund. Kom hann á straumflugu sem við þekkjum ekki nafnið á í Stöðvarhyl og á meðan hann barðist um í hylnum, fylgdi honum um tíma annar af svipaðri stærð. Og þegar leikurinn barst örlítið neðar á breiðuna, fældust þrír fiskar sem lágu furðu nærri landi og voru tveir þeirra sýnu stærri en sá sem barðist við veiðimanninn og sá þriðji svona álíka. Þannig að það eru þarna feiknavænir fiskar og talsvert af þeim.
Samkvæmt veiðibók var kominn 271 fiskur á land í dag, en þar af voru tvær bleikjur. Einn veiðihópur hafði gleymt að bóka. Haustið er oft drjúgt í læknum og veiða menn þá gjarnan ýmist á straumflugur eða andstreymis veiddar púpur. Það gætu því verið góðir dagar fram undan í Minnivallalæk.
