votnogveidi_Fors_2009-03
eru þau að fáann

Stórlaxaveisla í Laxá

25.8.2010

 

mok8 2010

Á stórlaxaslóðum í Laxá í Aðaldal. Mynd frá www.veidimenn.com

Veiði hefur glæðst í Aðaldalnum og skipti sköpum að það gerði góða rigningu á dögunum. Slý tók upp og hreyfing komst á laxinn. Eins og marg hefur komið fram þá er óvenjulegamikið um risalaxa í ánni í sumar og hafa veiðimenn ekki farið varhluta af þeim síðustu daga.

 mok4 2010Í gær veiddi Geir Gunnarsson t.d. 110 cm hæng í Kirkjuhólmakvísl og er það lengsti lax sumarsins, en fyrir fáum dögum veiddist á Skerflúðum í sömu á 109 cm. Viðmiðunarkvarði VMSt vill hafa 110 cm lax 13,1 kg eða rétt yfir 26 pundum. Ekki er okkur kunnugt hvort að þessi fiskur var veginn í háfnum, en algengt er að svo sé í Laxá í Aðaldal. Á vef SVFR em hefur með Nesveiðarnar í Laxá að gera er miðað við kvarðann. Á myndinni er Geir með laxinn, en myndin er úr Fréttablaðinu.

mok5 2010

Örvar Hafsteinsson með 25 punda hæng af Stíflunni. Mynd frá Árna Pétri Hilmarssyni.

mok6 2010

Nökkvi með 25 pundara af Knútsstaðatúni. Mynd frá Árna Pétri Hilmarssyni.

Lax Geirs kom í 40 laxa holli á Nesveiðunum og voru þrír til viðbótar veiddir þar þegar líða tók á daginn. Fyrst er að nefna 106 cm hæng sem Örvar Hafsteinsson veiddi  á Hólmavaðsstíflu og var veginn 25 pund, síðan veiddi Nökkvi (hvers föðurnafn okkur vantar) 104 cm hæng af Knútsstaðatúni og sá var einnig veginn 25 pund. Loks veiddi Þorsteinn Frímann 103 cm 24 punda hæng í Beygjunni. Þorsteinn er meðlimur í Mokveiðifélaginu sem heldur úti vefsíðunni http://www.veidimenn.com/  og hann sagði okkur eftirfarandi veiðisögu í tilefni dagsins: 

mok3 2010

Þorsteinn Frímann með 24 pundarann sinn af Beygjunni, lax sem hann landaði með tannstöngli. Mynd (og sú að neðan) af www.veidimenn.com

mok2 2010

Koss á kollinn að skilnaði.

Mokveiðifélagið var við veiðar þar nú um helgina með 2 stangir.  Mættum eldhressir en útlitið ekki uppá marga fiska,  rigning og norðan bál. Ekki var nú meiningin að fá sér gæd en menn sem við töluðum við sögðu að annað væri ekki til umræðu.  Svo var byrjað að reyna að kasta en gædinum leist ekkert á að við værum bara með tannstöngla (einhendur ) og sagði að svona ætti ekki að sjást í Aðaldalnum. Ekkert á fyrstu vakt. Svo byrjaði það, fimm fiskar komu annan daginn og sex þann þriðja og svo kom seinasti morguninn og þá var dottið í logn og blíðu. Og viti menn, þá var sett í fisk á Beygunni og eftir 15 mín kom 24punda 103cm hængur á land, mældur í sílinguna,  á einhendu. Tók hann Skrögg túpu frá Kröflu.is..  Þetta var fráfær túr, 14 laxar hjá okkur á tvær stangir.“

Athygli skal vakin á því, að ofangreindum vef Mokveiðimanna er að finna fjölda mynda af veiðiskap þeirra í Laxá í Aðaldal á dögunum. Menn hafa mikið talað um að 30 punda múrinn verði rofinn áður en yfir lýkur, en þó að lengd veiddra laxa sé á uppleið, þá er þyngdin á niðurleið, því laxarnir leggja jú flestir af þegar haustar.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica