votnogveidi_Fors_2009-05
eru þau að fáann

Þeir eru stærri í Rússlandi

23.8.2010

 

42 punda lax úr Yokanga

Hann er engin smásmíði 118 cm hængurinn!

Það er sannarlega allt gott og blessað að það skuli hafa orðið aukning í ár á stórlaxi. En þessir 90 til 100 cm laxar hérlendis lyfta ekki augabrúnum veiðimanna í Rússlandi. Það fékk Jón Þór Júlíusson að reyna í ánni Yokanga fyrir skemmstu.

Jón Þór með 42 punda lax

Jón Þór á eftir að lifa lengi á þessari minningu.....

„Þetta er eitthvað sem kemur kannski fyrir mann einu sinni í lífinu. Og hvílík upplifun. Við erum að tala um sterka 15 feta tvíhendu sem er nánast sveigð hringinn í heilan klukkutíma og harðahlaup. Svo kemur þetta ferlíki á land, nánast tveggja manna tak að taka á því,“ sagði Jón Þór í spjalli við VoV en hann veiddi á dögunum 42 punda lax í rússnesku ánni Yokanga. Laxinn var 118 cm og mesta ummál 60 cm. Hann var talsvert leginn og Jón taldi að hann hefði mögulega lagt af eitt til tvö kíló. „Flugan sem hann tók var bara ósköp venjuleg íslensk Snælda, hálftommu túpa með keilu,“ bætti Jón við.

Jón Þór átti þarna magnaðan morgun, hann og veiðifélagi hans lönduðu fjórum löxum og var einn þeirra aðeins 6 pund. En hinir voru 29, 33 og 42 punda!




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica