votnogveidi_Fors_2009-03
eru þau að fáann

Stórlax úr Svarthamri

23.8.2010

 

100 cm úr Svarthamri

Rafn heldur á laxinum, en kúnninn er drjúgur með sig og hefur innistæðu fyrir því! Glæsilegur lax....

Miðfjarðará er enn í uppsveiflunni sem gaf henni metveiðina í fyrra. Þetta er ekki alveg eins magnað og þá, en veiðin er samt frábær miðað við slök skilyrði, líkt og úi fyrra. Nýlega kom 20 pundari úr ánni

Við fengum skeyti frá Rafni Alfreðssyni leigutaka og hann sagði: “Veiðin í Miðfirðinum er ennþá frábær.  Síðasta 3 daga holl sem hætti á hádegi í dag(gær) var með 169 laxa á stangirnar 10.Töluvert af aflanum var 2 ára fiskur og kom einn 100 cm fiskur úr Svarthamri í fyrrakvöld. Því miður vorum við eingöngu með myndavél á farsíma þannig að gæðin á myndinni eru ekki upp á 10. Fyrir nokkrum dögum var sett í tröll í sama hyl og sleit það sig laust eftir bardaga sem tók vel á annan tíma. Hollið sem byrjaði á hádegi í gær veiddi vel þrátt fyrir kulda og hvassviðri.. Lönduðu stangirnar 10, 36 löxum á fyrstu 6 tímunum.. Það af voru 2 lúsugir stórlaxar í Miðfjarðaránni sjálfri og var annar þeirra 87 cm ósaleginn hængur. Aðeins eru nokkrir dagar síðan við lönduðum 99 cm lúsugum hæng á sama svæði. Áin er að nálgast 2300 laxa og þökkum við því að hluta að þeir veiðimenn sem hafa verið hjá okkur í sumar eru að sleppa mestum hluta veiðinnar.Þannig var það að þegar við vorum í 2000 löxum hafði rétt rúmlega 90% landaðra fiska verið sleppt aftur..




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica