Nýtt met að fjarlægjast
Laxi sleppt. Mynd Vigfús Orrason.
Laxveiðisumarið hefur verið afar athyglisvert. Byrjaði með látum og mörgum stórum löxum, síðan hefur lengi vel stefnt í metveiði þrátt fyrir vatnsleysi og skort á smálaxi í heilu landshlutunum. En nýtt met er þó ekki í sjónmáli í bili.
Umsjónarmaður angling.is hefur birt vikulegar veiðitölur úr mörgum viðmiðunarám og allt þar til 18.ágúst sem var síðasti viðmiðunardagur, var sumarið 2010 með betri heildartölu heldur en metsumarið 2008. Skyndilega var það dottið um 350 niður fyrir og tæplega nær það sig aftur upp þótt aldrei megi segja aldrei.
Þeir á angling.is nefna það helst að hafbeitarárnar séu ekki að gefa jafn vel og 2008 og þar liggi stóri munurinn. Þær eru að skila góðri veiði, Rangárnar báðar, en ekki eins góðri og 2008 að mati angling.is. Báðar eru komnar yfir 3.000 laxa múrinn og stefna hraðbyri í 4.000 laxa.

Frá Fnjóská. Þar er komið glæsilegt met á koppinn, 148 löxum meira en gamla metið s.l. miðvikudag. Mynd Ingi Freyr Ágústsson.
En það er í sjálfu sér fleira. Tiltölulega fáar ár eru að skila meiri veiði þótt aðein sé miðað við 2009 sem einnig var mjög gott sumar. Bæði í fyrra og hitteðfyrra voru margar ár að skila metveiði, en við vitum aðeins um tvær ár í sumar, Blöndu og Fnjóská. Metið í Blöndu er meira að segja betrun á meti sem sett var í fyrra og á miðvikudagskvöldið var áin komin í 2.739 laxa sem er 326 löxum meira en metið frá 2009. Það er fyrir nokkru byrjað yfirfall í ánni þannig að þessi tala á ekki eftir að hækka að neinu ráði. Fnjóská getur hins vegar enn við sig bætt og mun eflaust gera, þar voru komnir 703 laxar á land s.l. miðvikudagskvöld en gamla metið var 555 laxar sem veiddust sumarið 1992.
Grímsá er komin yfir 2009 töluna sína. Mynd Jón Þór Júlíusson.
Fáeinar eru komnar fram úr tölu síðasta sumar, t.d. Grímsá með 1.434 laxa(1.339 í heild í fyrra) og Elliðaárnar 1.060(88 í heild í fyrra). All nokkrar ár eru að gera það afar gott, t.d. Haffjarðará með 1.502 laxa á sínar sex stangir, en hún gaf 1.622 í fyrra. Einnig má nefna Selá sem var komin í 1.468 laxa á sjö stangir, en hún gaf 1.993 laxa í fyrra. Selá er inni á svæðinu þar sem menn tala um skort á smálaxi þannig að það verður fróðlegt að sjá hvaða dampi hún heldur til vertíðarloka..
Hvað sem verður, þá er drjúgur veiðitími eftir. Síðustu sumur hefur lokakaflinn verið afar drjúgir þar sem loksins hefur rignt í vatnslitlar laxveiðiár og hreyfing þar með komist á laxinn
