"Sá stærsti sem ég hef fengið"
Gunnar Karl Gíslason matreiðslumeistari á veitingastaðnum Dill var við veiðar í Fljótaá nú í vikunni. Hann krækti í 84 cm hrygnu, sem var stærsti lax sem hann hefur veitt. Gunnar var við veiðar ásamt Ólafi Erni Ólafssyni en þeir tveir reka saman áðurnefndan veitingastað. Gefum Gunnari orðið:
"Við byrjuðum veiðar á svæði 2, sem m.a. býður upp á hinn eftirminnilega veiðistað Berghyl. Afar fallegur hylur og fjölbreyttur. Okkur auðnaðist ekki að halda fiski þarna en settum í einn ágætan.
Annars náði ég að landa 84 cm hrygnu sem tók Black and blue túbu í Bakkahyl. Það var óhemju skemmtileg viðureign og þetta er stærsti lax sem ég hef veitt á flugu. Óli tók nokkrar myndir og hér fylgja þær."
Laxinn í flæðarmálinu ... Mynd: Ólafur Örn
Losað úr hrygnunni ... Mynd: Ólafur Örn
Pósað fyrir ljósmyndarann ... Mynd: Ólafur Örn
... og hrygnunni svo sleppt eins og vera ber. Mynd: Ólafur Örn
