Fékk tvo yfir 20 pund á sama klukkutímanum

Þetta er sá "litli", aðeins 102 cm. Myndirnar báðar tók Ásgeir Steingrímsson.
Það er ekki svo lítið búið að tala um stórlaxana í Laxá í Aðaldal í sumar. En að sami veiðimaður veiði tvo yfir 20 pund á sama klukkutímanum er samt með ólíkindum. Það er nokk sama hvort staldrað er við á Laxárfélagssvæðunum eða Nesveiðunum, alls staðar eru stórlaxar á bak við stein, fjöldi laxa á bilinu ca 18 pund og uppúr er orðinn magnaður og verður gaman að heyra í haust heildartöluna yfir þá stóru-stóru.

Og hér er sá stóri, 104 cm.
En við fengum skeyti í gær frá góðkunningja okkar og einum liprasta Laxárveiðimanni sem uppi er, Ásgeiri Steingrímssyni, en hann var að veiðum á Laxárfélagssvæðunum í vikunni með John Ragnari Maticko. Skeyti Ásgeirs var svohljóðandi:
“Sendi ykkur hér myndir úr Aðaldal. Félagi minn John Ragnar Maticko fékk þessa tvo risalaxa í Brúarhyl á sama klukkutímanum þann 19.ágúst. Sá fyrri var 104 cm og sá seinni aðeins 102 cm. Hann fékk þá báða á sömu fluguna sem hann hnýtti sjálfur. Hún er örsmá túba, svört og ljóslillablá, þyngd með tungsten keilu. John er höfundur hinna frábæru silungaflugna, Maticko Black og MME.Þá er Flassarinn hans ein skæðasta laxafluga sem um getur.”
