votnogveidi_Fors_2009-05
eru þau að fáann

Stórir í Hafralónsá og víðar

21.8.2010

 

tröll úr Hafró

Baldur Snorrason með stórlaxinn sinn úr Hrotta í Hafralónsá.

Víða að berast þau tíðindi, einkum að norðan, að veiðin samanstendur að stórum hluta af stórum laxi...það er lítið af smálaxi, en samt eru tölur góðar.

Við heyrðum t.d. í Jörundi Guðmundssyni nýverið sem var með nýlegar fréttir af Sandá í Þistilfirði og það var sama sagan, veiðin for vel af stað með stórum fiski, en síðan dalaði veiðin. Síðan heyrðum við í Baldri Snorrasyni sem var heppinnog landaði trölli í Hafralónsá. Gefum Baldri orðið:

Hafralonsa-11-09-2007

„Vorum að enda tveggja daga holl í Hafralónsá um hádegið í gær. Það var nú ekki mikið líf í ánni og ekki margir laxar að koma á land þessa síðustu daga en á móti kemur að þeir geta orðið stórir þarna. Byrjaði á því að ná einum 93cm hæng en fékk svo annann í Hrotta í gær (fyrradag) , sem reyndist 101cm og tók baráttan 40mín. Hann var tekin á hálftommu Snældu með keilu. 12 krók. Það komu 15 fiskar á land úr hollinu en áin er búin að vera frekar róleg núna síðustu daga.

Stapinn í Hafralónsá.

Byrjaði vel í júlí en þarna eins og víða annars staðar þá virðist smálaxinn ekki vera mættur. Þrátt fyrir að veiðin sé róleg núna þá eru komnir um 450 fiskar sem er bara svipað og undanfarin ár að ég held. Þetta er athyglisvert, þetta á að vera mjög góður tími í austfirskum ám en virðist vera öfugt þetta árið, þ.e júlí kemur mjög vel út en ágúst frekar daufur.“

Sömu sögu er að segja af t.d. Fljótaá í Fljótum sem var með magnaða metveiði í fyrra, 466 laxa og byrjaði af feikna krafti fyrr í sumar. Áin er með fína tölu, 195 laxa síðast liðið miðvikudagskvöld skv angling.is en þar hefur hægt nokkuð á laxveiðinni. Holl sem var þar og lauk veiðum um miðja vikuna var t.d. aðeins með 5 laxa. Menn sáu talsvert, en það var lítið af nýjum fiski og þeir legnu að taka frekar illa og grannt. Hins vegar var hópurinn eins og fleiri hópar í ánni í sumar í myljandi sjóbleikjuveiði og komu a.m.k. 80 stykki á land




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica