Lentu í veislu í Fljótinu

Guðmundur Stefán með einn flottann.
Eysteinn Orri Gunnarsson og Guðmundur Stefán Guðmundsson lentu í spennandi veiðiskap í Norðlingafljóti á dögunum þegar þeir veiddu ána í rénum eftir úrkomuskot. Eftir þrjár rólegar vaktir í skoluðu vatni komu þrjár þar sem allt fór af límingunum.

Eysteinn Orri að glíma við vænan lax.....

....og er hér með annan sem reyndist vera 75 cm.
„Það er mikið af laxi þarna og áin er gríðarlega falleg og veiðileg með afbrigðum. En hún var skoluð framan af og ég held að eitthvað af því hafi reyndar líka verið jökulbráð út af hitum. Nema hvað þegar áin fór að hreinsast þá veiddum við óhemju vel, eina 20 laxa og misstum annað eins. Það var blá og svört Snælda sem gaf mest af þessu, það eru litirnir fyrir skolað vatn,“ sagði Eysteinn Orri í samtali við VoV.
