Affallið er ein af spútnikánum

Þeir félagar verða að breyta um nafn á klúbbi sínum.....allar myndrnar eru frá seini ferð þeirra félaga.
Félagarnir í klúbbnum „Ekki varir“ stóðu alls ekki undir nafni þegar þeir fóru í Affallið í vikunni, heldur ekki þegar þeir fóru á sama svæðið fyrr í sumar, enda er vart hægt annað en að moka þar upp fiski. Affallið er ein af spútnikám sumarsins
Kjartan Örn Þórðarson er í forsvari fyrir hópinn og hann sendi okkur línu: „Við félagarnir erum búnir að kíkja 2-svar í Affallið í sumar og ekki hægt að segja annað en þær ferðir hafi svo sannarlega staðið undir væntingum. Fyrri ferðin var farin 19. Júlí og eftir að hafa lesið góðar fréttir af Affallinu, reiknuðu menn með því að þetta yrði ekki ósvipað því að fara í berjamó. Væntingarnar eru nú reyndar yfirleitt alltaf ansi miklar þegar haldið er af stað, þó svo aflinn sé nú yfirleitt ekki beint mældur í brúttólestum. Fullir eftirvæntingar héldum við af stað og þar sem ekki sást ský á himni og hitinn óbærilegur, óraði okkur nú kannski ekki beint við þeirri veislu sem við áttum í vændum.

Við vorum rétt byrjaðir að berja ána þegar fyrsti laxinn var kominn á land neðst í ánni en ekkert að gerast efst. Svo fór allt á suðupunkt og kom það nokkrum sinnum fyrir að verið var að landa fleiri en einum laxi í einu. Fyrir hádegi var svo búið að landa 19 löxum og fiskur út um allt. Þegar dagur var að kveldi kominn hafði 29 löxum verið landað og menn búnir að missa slatta.
Síðastliðinn laugardag héldum við svo aftur af stað í Affallið og þrátt fyrir að veðrið hafi ekki kannski ekki verið uppá sitt besta, kom það þó ekki í veg fyrir góðan dag. Neðsti hluti árinnar gjörsamlega kraumaði af fiski og þegar menn pökkuðu saman, voru allir búrnir að setja í lax og við búnir að landa 15 löxum.

Úr þessum 2 ferðum fengum við því 44 laxa og voru flestir þeirra um svona 5 pund og allir á bilinu 4-7 pund. Bestu flugurnar reyndust vera Sunray, Collie dog og þýsk Snælda. Áin stóð svo sannarlega undir öllum þeim væntingum sem til hennar voru gerðar og sást fiskur á flestum þeim svæðum sem könnuð voru."
