votnogveidi_Fors_2009-05
eru þau að fáann

Boltafiskur úr Svalbarðsá

20.8.2010

 

18 punda úr Laxhyl

Sigurður Gíslason með 18 punda hrygnu úr Svalbarðsá.

Veiði byrjaði vel í Svalbarðsá í byrjun sumars og hefur gengið upp og ofan, en í heild vel það sem af er. Í gær veiddist verulega fallegur lax í ánni.

Um var að ræða hrygnu eina mikla sem Sigurður Gíslason veiddi í Laxhyl og var 96 cm. Samkvæmt kvarða þá er lax af þeirri lengd 8,9 kg eða rétt tæp 18 pund. Af myndinni að dæma þá hefur lax þessi ekki verið í grennri kantinum og því klárlega 18 punda í það minnsta, en hrygnur léttast minna en hængar þegar líður að hausti, á sam tíma og hængar brenna fitu, þroska hrygnur hrogn og önnur nauðsynleg líffæri.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica