20 pundari úr Norðurá

Áskell Agnarsson breiðir út faðminn til að lýsa stórlaxinum, en því miður var engin myndavél til taks.....myndin er fengin með leyfi frá Víkurfréttum, www.vf.is og þar eru fleiri myndir frá Norðurá.
Norðurá tók aðeins við sér eftir smá vætu og tveggja daga holl náði 53 löxum sem er hátíð miðað við síðustu hollin á undan. En það taldist til tíðinda að 20 pundari kom á land úr ánni, en það er ljónsjaldgæft til áratuga.
Það var Suðurnesjamaðurinn Áskell Agnarsson sem veiddi þann stóra í Myrkhyl og notaði þýska Snældu. Viðtal er við Áskel í vefútgáfu Víkurfrétta, http://www.vf.is/ og þar segir hann m.a.: „Ég græjaði mig upp fyrir stóran fisk. Ég og veiðifélagi minn ræddum það og ég setti stærri flugu, taum og þríkrækju á stöngina. Svo kom bara kvikindið. Það er nokkuð ljóst að þessi stóri fiskur hefur verið í ánni í allt sumar því hann var leginn eins og sagt er, rauðleitur og dökkur“, sagði Áskell.
Laxinn var 101 cm og mjög leginn, greinilega búinn að hanga í ánni alla vertíðina og hugsanlega gott betur af lýsingunum að dæma. Kvarðinn segir 101 cm vera 10,3 kg. Annars er það af Norðurá að segja að þetta virðist vera skammgóður vermir, áin óx nokkuð eftir gusu, en hefur fallið hratt aftur, enda ekkert framhald á vætunni í bili. Áin er komin í um 1.900 laxa og óhætt að segja að menn horfi til haustveiðidaganna með glýju í augum. En lesendur geta skoðað frásögn Áskels af meiri nákvæmni á ofangreindri slóð sem liggur inn á vefsvæði Víkurfrétta. Myndina birtum við með leyfi Páls Ketilssonar ritstjóra.
