1.000 laxa múrinn í sigtinu
Falleg mynd frá Breiðdalsá. Myndin er af www.strengir.is
Þrátt fyrir að veiði hafi stóraukist í Breiðdalsá seinni árin og hún sé orðin með nafntogaðri laxveiðiám landsins, þá hefur aldrei tekist að rjúfa þúsund laxa múrinn. Góð von er þó til að það gangi upp í ár.
Þröstur Elliðason leigutaki og umsjónarmaður Breiðdalsár er vongóður um að loksins takist að koma ánni yfir þúsund laxa. Þröstur sagði: „Það er að veiðast þokkalega í Breiðdalsá sem hefur nú gefið rúmlega 500 laxa. Það er mun meira en áður á þessum tíma. Ætti 1000 laxa múrinn að nást í þetta sinn ef síðsumarsveiðin stendur undir nafni eins og oft áður. Það hefur aðeins dofnað yfir ánum okkar í ágúst eftir frábæran júlí, árnar hafa orðið vatnslitlar í þurrkunum, en nú er rignng í kortunum og því góð von til þess að veiðin taki aftur við sér.“
