votnogveidi_Fors_2009-05
eru þau að fáann

Töfrar vætunnar

18.8.2010

 

Halalýs

Enn eru að ganga lúsugir laxar í Dölunum, sem og víðar. Mynd Heimir Óskarsson.

Töfrar vætunnar í kjölfar langra þurrka og vatnsleysis verða aldrei ofmetnir, það sannaðist á bökkum Laxár í Dölum í vikunni þegar síðasta fluguveiðihollið lauk þar veiðum með magnaða veiði. Hollin með „blandað agn“ taka nú við og áin lítur vel út.

Það rigndi sum sé loksins af viti vestur í Dölum og Laxá fékk þessa líka fínu innspýtingu á vatn. Fyrir var mikið af laxi í ánni og margir sem lágu úti í þara flýttu sér upp í ána við þessar hagstæðu breytingar. Þegar vatnið fór að sjatna var allt sjóvitlaust og þriggja daga sex stanga holl í ánni landaði 119 löxum, stórum og smáum, legnum og nýjum. Lítur nú heldur betur vel út með haustið.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica