votnogveidi_Fors_2009-02
eru þau að fáann

Bólar á birtingi fyrir austan

18.8.2010

 

Hagafoss

Hagafoss í Geirlandsá. Myndin er fengin af vef SVFK, www.svfk.is

Eins og venjulega þá eru fyrstu sjóbirtingarnir farnir að láta á sér kræla í ám í Vestur Skaftafellssýslu. Má nefna Geirlandsá, Tungulæk og Steinsmýrarvötn. Það komu hressilegar dembur þar eystra á dögunum og vatnavextir. Það dugði til.

Fyrsti birtingurinnúr Geirlandsá kom á sunnudaginn er áin var að jafna sig eftir flóð. Var það 4 punda nýgenginn fiskur sem hafði straujað alla leið upp í Hagafoss og stoppaði sennilega af þeirri einföldu ástæðu að fossinn er ófiskgengur. Hópurinn fékk að auki nokkra laxa og þegar vatnið sjatnaði sáust víða fiskar, bæði laxar og birtingar. Meira um þetta á http://www.svfk.is/

Þá er all nokkuð síðan að fyrstu birtingarnir gengu í Tungulæk og fóru að veiðast, en það gerist oftast um og upp úr miðjum júlí. Það eru aldrei stórir hópar á þeim tíma, en jafnan vænir fiskar. Þá má nefna að holl í Steinsmýrarvötnum sem lauk veiðum á sunnudag fékk fyrsta alvöru skotið, var með 25 sjóbirtinga í afla sínum, sem taldi 29 fiska. Áður höfðu fengist birtingar á stangli frá lokum júlí. Þetta voru 2-5 punda fiskar, en lesendur geta skoðað sig um og fengið fleiri fréttir á http://www.steinsmyrarvotn.is/ 




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica