votnogveidi_Fors_2009-04
eru þau að fáann

109 cm Maríulax á Skerflúðum

17.8.2010

 

 109 cm Skerflúðir 2010

Steen Foldberg t.v. og Völundur Hermóðsson með stórlaxinn. Myndina tók Allan Kristiansen.

Stærsti lax sumarsins(a.m.k. sá lengsti) veiddist í Laxá í Aðaldal á Nessvæðunum í kvöld. Var það magnaður hængur sem var 109 cm. Menn hafa verið að spá 110 cm löxum og stærri á land úr ánni í sumar og það gæti enn gengið eftir, enda eru þeir nokkrir slíkir í ánni núna.

Laxinn veiddi danskur veiðimaður, Steen Foldberg,  á Skerflúðum og flugan var Hairy Mary brown númer 4. Þetta var Maríulax Steens og má segja að margur hafi byrjað laxveiðiferil sínn verr! Viðureignin við laxinn stóð yfir í 40 mínútur.

Samkvæmt skala VMSt þá er 109 cm lax 12,8 kg, eða ca 25,5 pund. Stórlaxar Laxár hafa yfir höfuð verið þyngri en viðmiðunarkvarðinn, en menn verða að gera hver upp við sig. Haraldur Eiríksson hjá SVFR sagði eftir að hafa skoðað myndir af laxinum, m.a. þá sem hér birtist,  að hann veðjaði á að kvarðinn héldi í þessu tilviki, en benti þó á að laxinn njóti sín kannski ekki sem skyldi á myndinni, þar sem hann er örlítið sveigður og því erfitt að meta af mynd.

Völundur Hermóðsson í Álftanesi var leiðsögumaður hins danska, en Völundur er sjálfur búinn að missa tvo í yfirstærð í sumar. Haraldur bætti við að enn stærri lax hefði tapast á Knútsstaðatúni í dag og enn einn á Grundarhorni fyrir skemmstu. Sá lax teymdi menn alla leið niður á Höfðabreiðu áður en það lak úr honum. „Þeir eru nokkrir á sveimi, það hafa t.d. verið þrír svona risar á Grundarhorni í allt sumar og það er búið að setja í tvo þeirra, en menn hafa ekki getað haldið þeim. Þeir fara að hreyfa sig núna, leggjast á rólegri staðina og þá fara menn að ráða betur við þá. Við gætum séð mun stærri lax á land áður en vertíðin er úti,“ sagði Haraldur.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica