votnogveidi_Fors_2009-04
eru þau að fáann

Enn vantar víða smálax

17.8.2010

 

stórlax úr Ármótahyl 2010

Hress veiðikappi með 100 cm hæng sem tók í Ármótahyl og dróg síðan veiðimanninn tvo kílómetra niður ána áður en hann lét í minni pokann! Myndin er fengin af www.vatnsdalsa.is

Þrátt fyrir að það stefni í eitthvert mesta laxveiðisumar fyrr og síðar þá virðist víða vanta nokkuð upp á að smálaxagöngur séu virkilega sterkar. Á það sérstaklega við yfir mest allt norðanvert landið. Að sama skapi eru stærri laxar meira áberandi víða.

Við höfum áður tekið þetta fyrir og bent á óheyrilega meðalþyngd í Laxá í Aðaldal, en það er einkar auðvelt að fyljgast með þessu í rafrænu veiðibók Vatnsdalsár á http://www.vatnsdalsa.is/ þar sem þetta kemur berlega í ljós fyrir utan jú, að leigutakinn Pétur Pétursson, sem hefur veiðileynslu af ánni um árabil segir að það vanti talsvert kraft í smálaxagöngur. Vill hann ekkert afskrifa enn sem komið  er, en menn vita jú að eftir því sem styttist í haustið þeim mun ólíklegra er að körftugar göngur skili sér. Eðlilegt ástand þess árstíma er að það tínist inn einhver viðbót.

Í gærkvöldi stóð talan í 643 löxum í rafrænu veiðibókinni og stendur nú yfir prýðisgott veiðisumar í ánni þó svo að skilyrði hafi á stundum verið afar erfið, m.a. hefur um tíma í sumar verið lægst vatnsstaða sem menn muna í hálfa öld. Meðallengd laxa er 73,11 cm, eða ríflega 3 cm yfir viðmiðuninni sem notuð er til að aðgreina smálaxa frá stórlaxi. Samkvæmt viðmiðunarkverða VMSt sem Vatnsdælingar nota, er meðalþyngdin úr ánni það sem af er 4,37 kg, eða rétt tæplega 9 pund!

Í aflanum að undanförnu hafa verið sannkallaðir boltalaxar, m.a. 98, 99 og 100 cm laxar. Maður verður nú að velta fyrir sér smámunaseminni með þennan 99 cm, af hverju í andsk... var ekki hægt að toga hann upp um einn cm til að veiðimaður gæti hampað 20 punda múrnum!!! En myndin sem við fengum að láni af vef Vatnsdælinga er af 100 cm 20 pundara(eða meira) sem veiddist í Ármótahyl og tók sá stóri tommu langa rauða Frances túpu. Stóð glíman yfir í 45 mínútur og lauk ekki fyrr en tveimur kílómetrum neðar í ánni og hafði laxinn þá plægt í gegnum fjóra veiðistaði.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica