Fallegur bolti úr Hrútu
Ómar með stórfiskinn.
Óhætt er að segja að demburnar hér og þar að undanförnu hafi hleypt lífi í veiðiskapinn. EIn á sem var orðin afar dapurleg vegna vatnsleysis var Hrútafjarðará, en hún hefur tekið við sér og gefur vel þessa daganna.
Við fengum skeyti frá Agli í betra Bak, en hann var í ánni fyrir skemmstu ásamt veiðihópi sínum. Hann skrifar: „Þennan fallega 14 punda hæng fékk Ómar Ómarsson í Réttarfossi í Hrútafjarðará. Þeir voru að byrja að veiða og var þetta þeirra fyrsti lax en mikið sést að fiski og má segja að það kraumi allt uppí Réttarfossi sem er efsti staður í Hrútafjarðará. Vatnið er fínt í ánni eftir smá rigningar en þó mætti rigna betur. Síðar fékk þessi lax aftur að finna sér sinn stað í hylnum að lokinni hetjulegri baráttu.
Hrútan var komin í 195 laxa s.l. miðvikudag og veiði verið góð síðan. Það má því bóka að það sé rétt, þó það sé kannski örlítið ónákvæmt, að segja að áin sé nú komin vel á þriðja hundrað laxa.
