Regnið gerir gæfumuninn
Jón Gunnar Ottósson með'ann á í Sunnevjufossi í Laxá í Leirársveit fyrir skemmstu. Neðan við grillir í veiðistaðinn Ljónið. Myndin er frá Hjálmari Árnasyni.
Rigningargusurnar hér og þar að undanförnu hafa vissulega hleypt lífi í veiðiskapinn þar sem þeirra hefur notið við. Ein þeirra er Laxá í Leirársveit og lítil frásögn Hjálmars Árnasonar úr veiðitúr í ána þann 7.ágúst er til marks um hva‘ð góð demba getur gert.
Hjálmar hefur orðið: Var að koma úr stuttri ferð í Laxá í Leir. Á föstudag síðdegis(6.8.)var ótrúlegt að sjá vatnsbúskapinn. Man ekki eftir henni jafn daufri. Samt verulegur fiskur í bunkum á nokkrum dýpri hyljum og Miðfellsfljótið rómaða stappað. Við ósinn og brúna torfur með hundruðum fiska er bíða þess að renna sér upp í ána. Um klukkan sjö byrjaði að rigna og það hressilega. Hægt og rólega varð allt gegnblautt og smám saman hækkaði vatnsborðið í ánni. Við Atli Björn Bjarnason vorum svo lánsamir að eiga þá Miðfellsfljótið. Og hvílíkur gaurangangur. Á lofti voru þrír og fjórir fiskar í einu og laxar allt frá neðsta broti upp að brú. Stökkvandi í straumi sem á dauðu vatni. Ótrúleg viðbrigði frá þurrkudeyfðinni síðustu vikur. Á stuttum tíma fengum við Atli um 12 tökur og lönduðum fjórum. Sannaðist enn að Miðfellsfljótið telst til bestu veiðistaða á Íslandi, a.m.k.
Næsta morgun hafði greinilega lifnað yfir ánni. Menn sáu stóra torfu renna sér upp úr Vaðstrengjum inn í Laxfosshylinn. Ofar mátti sjá stöku fiska á leið upp ána. Haldi áfram að bæta í vætuna mega næstu dagar bjóða upp á góða veislu. Á meðfylgjandi mynd má sjá Jón Gunnar Ottósson þreyta fisk í Sunnevjufossi en neðar blasir Ljónið, einn af fallegri stöðum árinnar, við.“
Við þetta má bæta, að samkvæmt tölum á angling.is þá var Laxá komin í 720 veidda laxa þann 11.8, eða síðast liðið miðvikudagskvöld.
