Laxá á uppleið

Jón Eyfjörð t.v. og Ásgeir Steingrímsson með 50 cm urriða sem tók Maur. Mynd gg.
VoV var á bökkum urriðasvæðanna í Laxá fyrir norðan í vikunni og tókum við þar púlsinn á veiðiskapnum og virðist sumarið hafa verið nokkuð gott þar um slóðir, þó hefur hitafar að undanförnu aukið slýrek í ánni, en menn hafa þó séð það svartara í þeim efnum.

Maurinn. Þessari flugu beitti Ásgeir með góðum árangri. Mynd gg.
Í Mývatnssveitinni voru 2.034 komnir í bók er við litum þar inn snemma í vikunni og að mati kunnugra er það meðalgóð veiði og virðist urriðaveiðin á svæðinu vera á uppleið aftur eftir nokkra niðursveiflu. Menn sjá það bæði í því að fiskur er vel haldinn og svo er töluvert skráð af frekar smáum fiski sem segir mönnum að sterkir árgangar eru að koma hratt inn í veiðina. Stærsti skráði fiskurinn var 74 cm urriði úr Geirastaðaskurði, skráður á “Nymph”. Einnig eru all nokkrir á bilinu 64-68 cm og einn slíkur, 68 cm hefur greinilega verið drepinn því hann er með nákvæma þyngdarskráningu, 3,76 kg, eða um 7,5 pund.

Lítill urriðagoggur sem tók Galdralöpp. Mynd gg.
Í Laxárdalnum var gott hljóð í fólki, ef við heyrðum rétt þá var talað um 1.100 stykki þar og um 8 punda stærst. Erla á Rauðhólum sagði þó talsvert slýrek í ánni sem væri af og til til leiðinda og stafaði af hitanum í sumar, en menn væru samt að lenda í góðum skotum og landa vænum fiskum þó að rólegt væri á milli. Við hittum þarna fyrir Ásgeir Steingrímsson sem þekkir svæðið eins og handarbökin á sér og sagði hann að farsælast í stöðunni væri að beita þurrflugu. Landaði hann síðan nokkrum fiskum á Maur, 50 til 55 cm fiskum.
