Norðurá pökkuð af bleikju

Hress veiðimaður með fallega bleikju úr Norðurá. Allar myndirnar eru frá Axeli Óskarssyni.
Það er gaman að segja frá því að víða hefur sjóbleikjuveiði verið lífleg. Hvort að lokatölur verða góðar verður þó að koma í ljós. En núna síðast heyrðum við skemmtilega veiðilýsingu frá Norðurá í Skagafirði.

Nokkrar á grillið.
Það var Axel Óskarsson, veiðileyfasali hjá Lax-á sem sagði okkur frá skemmtilegum degi í Norðuránni fyrir skemmstu, en frásögn hans var svona: “Ég skrapp í Norðurá í Skagafirði um daginn með erlendan veiðimann þar sem Blanda var erfið fyrir fluguna. Það er ekki að spyrja að því, Norðuráin er gjörsamlega pökkuð af bleikju og við vorum ekki lengi að setja í nokkrar vænar.

Fallegur hængur á leið upp í fjöru....
Þetta voru allt feitar og fallegar bleikjur frá 1-3 pund, virkilega sprækar. Veiðimaðurinn hafði aldrei veitt bleikju áður og fannst hún engu síðri fiskur en laxinn í barátttu. Það var alveg sama hvar við dýfðum flugunni í ána, þó á þeim stöðum sem líklegir eru að hún haldi sig á, bleikjan var á um leið. Það var mikið vatn í ánni þá og alls ekki ólíklegt að einhverjir laxar leynist inn á milli en maður fékk alltaf örfá slíka þegar mikið vatn var í ánni í gamla daga.”
