Eyjafjarðará toppaði tröllið
Ásgeir Helgi Jóhannsson með 70 cm sjóbleikjuna, en síðan veiddust tvær enn stærri....
Það gat nú verið að engin önnur en Eyjafjarðará hafi toppað risasjóbleikjuna sem Vigfús Orrason veiddi í Hafralónsá á dögunum. Sú bleikja var 70 cm og 33 cm í ummál, en fyrir skemmstu veiddust á sama deginum tvær 72 cm bleikjur í Eyjafjarðará.

Hermann Brynjarsson á Akureyri sendi okkur línu og þar stóð eftirfarandi: „Var að lesa fréttina um 70cm bleikjuna. Það veiddust sama daginn fyrir ca 10 dögum tvær 72cm bleikjur í Eyjafjarðará. Þessar bleikjur veiddust á svæði 4 og eru væntalega komnar fram á dal á svæði 5. Einnig veit ég um eina 70cm sem veiddist á svæði 5 sl sunnudag, sem Ásgeir Helgi Jóhannsson veiddi sbr. meðfylgjandi mynd. Veiðitilhögun í ánni er þannig að það á að sleppa öllum bleikjum 50cm og lengri og menn mega hirða eina bleikju sem ekki nær 50 cm á hverri vakt. Vísindaátak stendur nú yfir í ánni.“
Á umsóknareyðublaði sem stangaveiðimenn á Akureyri fá vegna veiðileyfa í Eyjafjarðará eru upplýsingar um umrætt vísindaátak. Þar segir: „Umfangsmiklar rannsóknir á lífríki Eyjafjarðarár undir stjórn Bjarna Jónssonar umdæmisstjóra Veiðimálastofnunar á Norðurlandi, halda áfram í sumar. Rannsóknin felst m.a. í að merkja umtalsvert magn af bleikju, til að meta far bleikjunnar, mögulegan veiðistofn, veiðiálag, ofl. Merkingar á bleikju hefjast í vor á neðri svæðum árinnar. Bleikja verður merkt á svæði 5 og í þverám Eyjafjarðarár jafnt og þétt í allt sumar. Ekki verður merkt bleikja á heimiluðu veiðisvæði á svæði 5, í ágústmánuði. Gert er ráð fyrir að þessar rannsóknir spanni yfir þriggja ára tímabil.“
Rannsóknir þessar eru tilkomnar eftir að Eyjafjarðará dalaði hrapalega í nokkur ár. Virtist þar fara saman þetta fyrirbæri að sjóbleikju fer fækkandi í íslenskum ám, og mikil veiði á hrygningarbleikju á efri svæðum árinnar. Á þessu hefur nú verið tekið og eftir því sem við næst komumst þá hefur veiði verið góð í ánni í sumar. Og greinilega heldur hún hefð sinni sem stórbleikjuá. Viljum við í lokin geta þess að lúri einhver á myndum af umræddum 72 cm bleikjum, hefðum við á VoV mikinn áhuga á því að birta þær með upplýsingum um veiðistað og hvaða flugu þær tóku....
